next up previous contents
Next: Skrifstofa Up: No Title Previous: Formáli

Inngangur

Raunvísindastofnun Háskólans hefur verið miðstöð rannsókna í raunvísindum á Íslandi frá því hún var stofnsett fyrir röskum 40 árum. Af sögulegum ástæðum var líffræðirannsóknum fundinn staður í sérstakri stofnun. Á Raunvísindastofnun starfa nú alls um 70 manns, sérfræðingar, tæknimenn og skrifstofufólk. Að auki er stofnununin rannsóknavettvangur kennara Háskólans á þeim fræðasviðum sem hún starfar á.

Árið 1996 var heildarvelta stofnunarinnar 192 milljónir króna. Þar af var framlag ríkissjóðs 129 milljónir en afgangurinn styrkir úr innlendum og erlendum rannsóknasjóðum og framlög fyrirtækja til samvinnuverkefna. Sambærilegar tölur fyrir árið 1995 eru 181 milljón og 121 milljón. Sértekjur stofnunarinnar hafa farið hlutfallslega vaxandi hin síðari ár og jafnframt hefur framlag ríkissjóðs til útgjalda annarra en launa fastráðins starfsfólks farið minnkandi.

Tilgangur ársskýrslu stofnunarinnar er að lýsa stuttlega helstu rannsóknarverkefnum sem unnið var að á árinu 1996, gefa yfirlit yfir vísindaleg ritstörf starfsmanna stofnunarinnar og þær kynningar sem þeir héldu um rannsóknir sínar utan Háskólans. Þessar upplýsingar eru að hluta til unnar upp úr framlagi starfsmannanna til árbókar Háskólans. Hér er þó ekki um tæmandi skýrslu að ræða. Annarra ritstarfa en þeirra sem tengjast rannsóknarverkefnum er yfirleitt ekki getið og margvíslegra stjórnunar- og ráðgjafastarfa er ekki heldur ekki getið. Ekki er fjallað um fyrirlestra og málstofur innan vébanda Háskólans en sú nýbreytni er tekin upp að skrá netsíður sem tengjast rannsóknum og öðrum fræðastörfum starfsmanna stofnunarinnar. Ekki er fjallað um heimsóknir erlendra vísindamanna til Raunvísindastofnunar og ráðstefnur skipulagðar af starfsmönnum stofnunarinnar.

Aðstandendur skýrslunnar biðjast fyrirfram velvirðingar á þeim misfellum og gloppum sem óhjákvæmilega er hér að finna.

Þórður Jónsson
ritstjóri



Gerlinde Xander
Mon Dec 15 09:41:42 GMT 1997