Stofnunin sinnir einnig hagnýtum rannsóknum í samvinnu við aðra og tekur að sér þjónustuverkefni á sviðum þar sem sérþekkingu þá sem til þarf er ekki að finna utan stofnunarinnar.
Í þessari skýrslu er að finna upptalningu á helstu verkefnum sem starfsmenn stofnunarinnar unnu að á árinu 1996, ásamt yfirliti með útgefnum greinum, bókum, bókarköflum, skýrslum og erindum sem starfsmenn hafa flutt. Einnig eru í skýrslunni upplýsingar um fjölda starfsmanna, fjárveitingar og sértekjur.
Vilji einhverjir fá ítarlegri upplýsingar um einstök verkefni þá eru stofustjórar og starfsmenn ávallt reiðubúnir að veita slíkar upplýsingar.
Eggert Briem
stjórnarformaður Raunvísindastofnunar Háskólans