Auglýsing um starf
Samanburður á aðferðum til mælingar á stækkun vöðva við raförvun.
Við spítalann er nú þegar í gangi verkefni þar lærvöðvar einstaklinga sem
hafa orðið fyrir mænuskaða eru raförvaðir. Stækkun vöðvanna í vegna
raförvunarinnar hefur verið mæld með útreikningum á kraftivægi og
hverfitregðu í fótleggjum einstaklinganna.
Sem viðbót við þessar athuganir stingum við uppá verkefni þar sem bornar
yrðu saman þær aðferðir sem læknisfræðileg myndgreining hefur uppá að
bjóða til mælinga á stækkun og aukinni virkni vöðva. Nemandinn myndi
kynna sér þau form myndgreiningar sem hafa verið nýttar til þessa, s.s.
segulómun, segulrófsgreiningu og CT mælingar ofl, og myndi nemandinn svo
bera saman þessar aðferðir. Öll nýta þessi myndgreiningarform ólíka
eðlisfræði og má þar nefna ljósfræði, kjarneðlisfræði, skammtafræði og
merkjafræði sem dæmi. Mælingar liggja fyrir í CT er ráðgert að gera
segulómskoðanir líka á næstu misserum og mun nemandinn hafa aðgang að
þessum gögnum.
Þetta verkefni bíður uppá innsýn í hin ýmsu hlutverk sem eðlisfræðingar
hafa á spítölum og myndi nemandinn fá góða innsýn inní greinar einsog
læknisfræðilega eðlisfræði (Medical Physics) og heilbrigðisverkfræði
(Biomedical Engineering).
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við Þórð Helgason
(thordur@landspitali.is), Valdísi Guðmundsdóttur (valdgud@landspitali.is)
eða Þorgeir Pálsson (thorgeir@landspitali.is) á Landspítala
Háskólasjúkrahúsi.
Þeta verkefni mætti útfæra sem BS verkefni eða sem sumarstarf. Ég þakka
þér fyrirfram fyrir að koma þessu til skila.
Valdis Gudmundsdottir
Division of Clinical Engineering and Physics
Landspitalinn University Hospital
Raudararstigur 31
IS-105 Reykjavik
Iceland
tel : +354-543-1518
fax : +354-543-1539
email : valdgud@landspitali.is
Vidar Gudmundsson
Last modified: Tue Mar 28 09:12:25 GMT 2006