Snæfinnur snjókarl
Lag/texti: Steve Nelson/Hinrik Bjarnason
[C]Snæfinnur [C7]snjókarl
var með [F]snjáðan pípu[C]hatt,
Gekk í [F]gömlum skóm
og með [C]grófum róm
gat hann [G7]talað, rétt og [C]hratt.
[C]?Snæfinnur [C7]snjókarl,
bara [F]sniðugt ævin[C]týr,?
segja [F]margir [Ebdim]menn,
en við [C]munum [Am]enn
hve hann [Dm]mildur [G7]var og [C]hýr. [C7]
En [F]galdrar voru [Em]geymd[Am]ir
í [Dm]gömlu [G7]skónum [C]hans:
Er [G]fékk hann þá á [Bdim]fætur sér
fór hann [Am7]óða[D7]ra í [G]dans. [G7]
Já, Snæfinnur snjókarl,
hann var snar að lifna við,
og í leik sér brá
æði léttur þá,
-uns hann leit í sólskinið.
Snæfinnur snjókarl
snéri kolli himins til,
og hann sagði um leið:
?Nú er sólin heið
og ég soðna, hér um bil.?
Undir sig tók hann
alveg feiknamikið stökk,
og á kolasóp
inn í krakkahóp
karlinn allt í einu hrökk.
Svo hljóp hann einn, -var ekki seinn-
og alveg niðrá torg,
og með sæg af börnum söng hann lag
bæði í sveit og höfuðborg.
Já, Snæfinnur snjókarl
allt í snatri þetta vann,
því að yfir skein
árdagssólin hrein
og hún var að bræða hann.