Siggi var úti [C]Siggi var [C7]úti með [F]ærnar í [C]haga, [G7]allar [C]stukku þær [G7]suður í [C]mó. Smeykur um [C7]holtin [F]var hann að [C]vaga, [G7]vissi? hann að [C]lágfóta [G7]dældirnar [C]smó. Agg, gagg, [Am]gagg sagði [Dm]tófan á [G7]grjóti, [C]agg, gagg, [Am]gagg sagði [Dm]tófan á [G7]grjóti. [C]Gráleitum [C7]augunum [F]trúi ég hún [C]gjóti. [Dm]Grey[G7]ið hann [C]Sigg[Am]i hann [Dm]þorir [G7]ekki [C]heim. Pabbi hann sendi Sigga út að Bakka Siggi svo glaður í hjartanu varð. Úti við túnið var hann að vakka Er Vaskur kom hlaupandi út fyrir garð. Voff, voff voff sagði Vaskur á bakka Voff voff voff sagði Vaskur á Bakka Honum er illa við ókunna krakka Og aumingja Siggi hljóp grátandi heim. Siggi varð smeykur er sótti hann kýrnar, Suður hjá Tungu þær voru á beit, Svitnaði af ótta um ennið og brýrnar Er ólukku Bolann í Tungu hann leit. Böö, böö böö! Sagði Bolinn í Tungu Böö, böö, böö! Sagði Bolinn í Tungu. Að mæta því óféti er ei fyrir gungu Og aumingja Siggi fór grátandi heim. Dag einn var Siggi að dunda við ána, Dálítinn tíma í næði og ró. Með ofsa og bræði , í koll þessum kjána Krían úr hólmanum vængjunum sló! Krí, krí krí! Segir Krían við ána, Krí, krí, krí! Segir Krían við ána. Siggi af ótta fór allur að blána Og aumingja snáðinn hljóp grátandi heim. Loks komst hann Siggi í kynni við krumma, Kjáninn uppí gilið að hreiðrinu smaug. Á höfuð hans fell ofur leiðingleg lumma Um leið og hann Krummi að hreiðrinu flaug Krunk, krunk, krunk! Segir Krumminn við gilið Krunk, krunk, krunk! Segir Krumminn við gilið. Honum fannst eflaust hann ætti það skilið, En aumingja Siggi fór grátandi heim? en aumingja Siggi fór grátandi heim.