Siggi var úti
[C]Siggi var [C7]úti með [F]ærnar í [C]haga,
[G7]allar [C]stukku þær [G7]suður í [C]mó.
Smeykur um [C7]holtin [F]var hann að [C]vaga,
[G7]vissi? hann að [C]lágfóta [G7]dældirnar [C]smó.
Agg, gagg, [Am]gagg sagði [Dm]tófan á [G7]grjóti,
[C]agg, gagg, [Am]gagg sagði [Dm]tófan á [G7]grjóti.
[C]Gráleitum [C7]augunum [F]trúi ég hún [C]gjóti.
[Dm]Grey[G7]ið hann [C]Sigg[Am]i hann [Dm]þorir [G7]ekki [C]heim.
Pabbi hann sendi Sigga út að Bakka
Siggi svo glaður í hjartanu varð.
Úti við túnið var hann að vakka
Er Vaskur kom hlaupandi út fyrir garð.
Voff, voff voff sagði Vaskur á bakka
Voff voff voff sagði Vaskur á Bakka
Honum er illa við ókunna krakka
Og aumingja Siggi hljóp grátandi heim.
Siggi varð smeykur er sótti hann kýrnar,
Suður hjá Tungu þær voru á beit,
Svitnaði af ótta um ennið og brýrnar
Er ólukku Bolann í Tungu hann leit.
Böö, böö böö! Sagði Bolinn í Tungu
Böö, böö, böö! Sagði Bolinn í Tungu.
Að mæta því óféti er ei fyrir gungu
Og aumingja Siggi fór grátandi heim.
Dag einn var Siggi að dunda við ána,
Dálítinn tíma í næði og ró.
Með ofsa og bræði , í koll þessum kjána
Krían úr hólmanum vængjunum sló!
Krí, krí krí! Segir Krían við ána,
Krí, krí, krí! Segir Krían við ána.
Siggi af ótta fór allur að blána
Og aumingja snáðinn hljóp grátandi heim.
Loks komst hann Siggi í kynni við krumma,
Kjáninn uppí gilið að hreiðrinu smaug.
Á höfuð hans fell ofur leiðingleg lumma
Um leið og hann Krummi að hreiðrinu flaug
Krunk, krunk, krunk! Segir Krumminn við gilið
Krunk, krunk, krunk! Segir Krumminn við gilið.
Honum fannst eflaust hann ætti það skilið,
En aumingja Siggi fór grátandi heim?
en aumingja Siggi fór grátandi heim.