Nú er Gunna á nýju skónum [C]Nú er Gunna' á nýju skónum, nú eru' að [D7]koma [G7]jól, [C]Siggi er á síðum buxum, [D7]Solla' í [G7]bláum [C]kjól. [F]Solla' í bláum kjól, Solla' í bláum [G7]kjól, [C]Siggi er á síðum [Am]buxum, [D7]Solla' í [G7]bláum [C]kjól. Mamma er enn í eldhúsinu eitthvað að fást við mat. Indæla steik hún er að færa upp á stærðar fat. Upp á stærðar fat, upp á stærðar fat. Indæla steik hún er að færa upp á stærðar fat. Pabbi enn í ógnarbasli á með flibbann sinn. ,,Fljótur, Siggi, finndu snöggvast flibbahnappinn minn". Flibbahnappinn minn, flibbahnappinn minn. ,,Fljótur, Siggi, finndu snöggvast flibbahnappinn minn". Kisu er eitthvað órótt líka, út fer brokkandi. Ilmurinn úr eldhúsinu er svo lokkandi. Er svo lokkandi, er svo lokkandi. Ilmurinn úr eldhúsinu er svo lokkandi. Jólatréð í stofu stendur, stjörnuna glampar á. Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá. Gul og rauð og blá, gul og rauð og blá. Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá.