Nóttin var sú ágæt ein
Lag/texti: Sigvaldi Kaldalóns/Einar Sigurðsson
[Eb]Nóttin [Ab]var sú [Eb]ágæt ein
í [Cm]allri [Bb]veröld [Eb]ljósið [Bb]skein,
það [Gm]er nú [Cm]heimsins [F]þrautar[Bb]mein
að [Gm]þekkja' hann [Cm7]ei sem [F]bær[Bb]i [Bb7]
Með [Eb]vísna[Ab]söng ég [Eb]vögguna [Ab]þín[Adim]a [Bb] [Bb7]hrær[Eb]i
Með [Eb]vísna[Ab]söng ég [Eb]vögguna [Ab]þín[Adim]a [Bb] [Bb7]hrær[Eb]i
Í Betlehem var það barnið fætt,
sem best hefur andar sárin grætt,
svo hafa englar um það rætt
sem endurlausnarinn væri.
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri
Fjármenn hrepptu fögnuð þann,
þeir fundu bæði Guð og mann,
í lágan stall var lagður hann,
þó lausnari heimsins væri.
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri
Lofið og dýrð á himnum hátt
honum með englum syngjum brátt,
friður á jörðu og fengin sátt,
fagni því menn sem bæri.
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri
Þér gjöri' ég ei rúm með grjót né tré,
gjarnan læt ég hitt í té.
vill ég mitt hjartað vaggan sé,
vertu nú hér, minn kæri.
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri
Umbúð verður engin hér
önnur en sú þú færðir mér,
hreina trúna að höfði þér
fyrir hægan koddan færi.
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri
Á þig breiðist elskan sæt,
af öllum huga' ég syndir græt,
fyrir iðran verður hún mjúk og mæt,
miður en þér þó bæri.
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri
Með vísnasöng ég vögguna þína hræri