Minkurinn í hænsnakofanum \textahof{Ómar Ragnarsson} Það var [C]einu sinni bóndi sem [F]átti hænsna[C]bú Og [F]ær og hest og [C]kött og gæs og [D7]líka eina [G7]kú. En [C]eina dimma vetrarnótt þau [F]sváfu? öll sætt og [C]rótt Er [F]svartur grimmur [C]minkur læddist [D7]þangað ofur[G7]hljótt. [C] Hænurnar æptu [F]gogg, gogg, gó. [G]Haninn galaði [C]gaggala gó, [Am]Bóndi vinur [Dm]vakna þú og [G]ver þitt hænsna[C]bú En bóndinn svaf og hanagreyið hágrét, auminginn Er horfði hann upp á minkinn elta pútuhópinn sinn. En kisa litla sem að þarna kúrði undir vegg Hverft var við og hrökk upp er í hausinn fékk hún egg. Hænurnar æptu gogg, gogg, gó. Og vöktu með því kisu, Kisa æpti mjá, mjá mjá, Haninn galaði gaggala gó, Bóndi vinur vakna þú og ver þitt hænsnabú En bóndinn vaknaði ekki og haninn var nú orðinn ær. Hinn illi og ljóti minkur hafði étið hænur tvær. Nú skrækti hann á bóndans hjálp og rámur æpti: Ræs Þá rumskaði í næsta kofa gömul syfjuð gæs. Hænurnar æptu gogg, gogg, gó. Og vöktu með því kisu, Kisa æpti mjá, mjá mjá, Og vakti með því gæsina, Gæsin gargaði bra, bra, bra, Haninn galaði gaggala gó, Bóndi vinur vakna þú og ver þitt hænsnabú Og gæsin sem að átti unga lítinn þar Ekki leist á blikuna að hlusta? á púturnar. Hún vonda minkinn hræddist og veinaði um stund, Og vakti með því kúna sem þar tók sinn fegurðarblund. Hænurnar æptu gogg, gogg, gó. Og vöktu með því kisu, Kisa æpti mjá, mjá mjá, Og vakti með því gæsina, Gæsin gargaði bra, bra, bra, Og vakti með því kúna, Kýrin baulaði mö, mö, mö, Haninn galaði gaggala gó, Bóndi vinur vakna þú og ver þitt hænsnabú Og beljugreyið hræddist við að heyra óhljóðin Í hænunum og reyndi að vekja bola, manninn sinn En bolinn sagði argur og hann hristi hornin sín ?Hvaða bölvuð læti eru þetta kerling mín?? Hænurnar æptu gogg, gogg, gó. Og vöktu með því kisu, Kisa æpti mjá, mjá mjá, Og vakti með því gæsina, Gæsin gargaði bra, bra, bra, Og vakti með því kúna, Kýrin baulaði mö, mö, mö, Og vakti með því bola, Boli rumdi muuuhhh Haninn galaði gaggala gó, Bóndi vinur vakna þú og ver þitt hænsnabú Og bolinn varð mjög úrillur og bölvaði mjög hátt: Bannsett læti eru þetta hér um miðja nátt. Það verður strax að stöðva þetta villta hænugeim. Nú vek ég hundinn svo ég fái svefnfrið fyrir þeim.? Hænurnar æptu gogg, gogg, gó. Og vöktu með því kisu, Kisa æpti mjá, mjá mjá, Og vakti með því gæsina, Gæsin gargaði bra, bra, bra, Og vakti með því kúna, Kýrin baulaði mö, mö, mö, Og vakti með því bola, Boli rumdi muuuhhh Og vakti með því hundinn. Hundurinn gelti voff, voff, voff, Haninn galaði gaggala gó, Bóndi vinur vakna þú og ver þitt hænsnabú En nú vaknaði loksins bóndinn því að hundurinn gelti hátt Og hljóp beint út með byssuna og náði minknum brátt. Svo skaut hann minkinn ljóta og hljóp svo heim með hann Og húsfreyjuna vakti og sagði: ?Sjáðu hvað ég fann!? Hænurnar æptu gogg, gogg, gó. Og vöktu með því kisu, Kisa æpti mjá, mjá mjá, Og vakti með því gæsina, Gæsin gargaði bra, bra, bra, Og vakti með því kúna, Kýrin baulaði mö, mö, mö, Og vakti með því bola, Boli rumdi muuuhhh Og vakti með því hundinn. Hundurinn gelti voff, voff, voff, Og vakti með því bóndann. Haninn galaði gaggala gó, bóndinn sagði ha, ha, hæ og bóndakonan hæ, hæ, hæ, nú minkapels ég fæ.