Krummi svaf í klettagjá


[Am]Krummi svaf í [Dm]kletta[Am]gjá,
kaldri vetrar[Dm]nóttu [Am]á,
verður margt að meini,
[Dm]verður margt að [Am]meini.

Fyrr en dagur fagur rann
freðið nefið dregur hann
undan stórum steini,
undan stórum steini.

Allt er frosið úti gor,
ekkert fæst við ströndu mor
svengd er metti mína,
svengd er metti mína.

Ef að húsum heim ég fer
heimafrakkur bannar mér
seppi úr sorpi að tína,
seppi úr sorpi að tína.

Á sér krummi ýfði stél,
einnig brýndi gogginn vel,
flaug úr fjallagjótum,
flaug úr fjallagjótum.

Lítur yfir byggð og bú,
á bæjum fyrr en vakna hjú,
veifar vængjum skjótum,
veifar vængjum skjótum.

Sálaður á síðu lá
sauður feitur garði hjá
fyrrum frár á velli,
fyrrum frár á velli.

Krunk, krunk, nafnar komið hér
krunk, krunk, því oss búin er
krás á köldu svelli,
krás á köldu svelli.