Grænmetisvísur


[C]Þeir sem bara borða kjöt
og [G7]bjúgu alla [C]daga
þeir feitir verða' og flón af því
og [D7]fá svo illt í [G7]maga.
En [C]gott er að borða gulrótina,
[F]grófa brauðið steinseljuna,
[G7]krækiber og kartöflur
og kálblöð og hrá[C]meti.
Þá fá allir nettan maga
[F]menn þá verða alla daga
[G7]eins og lömbin ung í haga
laus við slen og [C]leti.

[C]Sá sem fá vill fisk og kjöt
hann [G7]frændur sína [C]étur
og maginn sýkist molnar tönn
og [D7]melt hann ekki [G7]getur.
En [C]gott er að borða gulrótina,
[F]grófa brauðið steinseljuna,
[G7]krækiber og kartöflur
og kálblöð og tó[C]mata.
Hann verður sæll og viðmótsljúfur
og [F]vinamargur, heilladrjúgur
og [G7]fær heilar, hvítar tennur
heilsu má ei [C]glata.