Ef ég nenni


[D]Gimsteina og perlur [Em]gullsveig um enni
[A]sendi ég henni, [D]ástinni minni
Öll heimsins undur, [Em]ef ég þá nenni
[A]færi ég henni, [D]ástinni minni
[D]Lífsvatnið dýra úr [Em]lindinni góðu
[A]færi ég henni [D]ef ég nenni

Hesturinn gullskór [Em]hóflega fetar
[A]heimsendi að rata, [D]ef ég nenni
[D]Ég veit ég átti hér, [Em]óskasteina
[A]þá gef ég henni, [D]ef hún vill fá mig
Ég gæti allan heiminn, [Em]ástinni minni
[A]óðara gefið, [D]ef hún vill sjá mig

[D]Kóngsríki öll ég [Em]kaupi í snatri
[A]kosti lítið, [D]ef ég nenni
Fegurstu rósir úr [Em]runnum þess liðna
[A]rétti ég henni, [D]ef ég nenni
[D]Aldrei framar neitt [Em]illt í heimi
[A]óttast þarf, engillinn minn því [D]ég er hér og vaki?

[D]Skínandi hallir úr [Em]skýjunum mér svífa
[A]ekkert mig stöðvar, [D]ef hún vill mig
Í dýrðlegri sælu [Em]dagarnir líða
[A]umvafðir töfrum, [D]ef hún vill mig
[D]Einhverja gjöf ég [Em]öðlast um jólin
[A]ekki mjög dýra, [D]sendi ég henni

Ef ekkert skárra [Em]ástand í vösum
[A]á ég þá kort að [D]senda henni
Ef hún vill mig, ef hún vill mig.
Ef ég get slegið einhvern þá fær
ástin mín gjöf frá mér.