Bíum, bíum, bambaló [Am]Bíum, [E7]bíum, [Am]bambaló, [Em]bambaló og [Am]dillidillidó. Vini [E7]mínum [Am]vagga ég í [F]ró, en [Em]úti bíður [E7]andlit á [Am]glugga. Þegar [E7]fjöllin [Am]fimbulhá [Em]fylla brjóst þitt [Am]heitri þrá, leika [E7]skal ég [Am]langspil [F]á, [Am]það mun þinn [Em]hugann [Am]hugga. Bíum, bíum, bambaló, bambaló og dillidillidó. Vini mínum vagga ég í ró, en úti bíður andlit á glugga. Þegar veður geisa grimm, grúfir yfir hríðin dimm, kveiki ég á kertum fimm, burtflæmi skammdegisskugga. Bíum, bíum, bambaló, bambaló og dillidillidó. Vini mínum vagga ég í ró, en úti bíður andlit á glugga. Ef þér sultur sverfur að, sauðakjöt ég hegg í spað, fljótt svo standi full með það tunna hver, dallur og dugga. Bíum, bíum, bambaló, bambaló og dillidillidó. Vini mínum vagga ég í ró, en úti bíður andlit á glugga. Ef þig langar eitthvert sinn ögn að smakka góðfiskinn, fram ég sendi flotann minn: skínandi skútur og kugga. Bíum, bíum, bambaló, bambaló og dillidillidó. Vini mínum vagga ég í ró, en úti bíður andlit á glugga. Hjá mér bæði hlíf og skjól hafa skaltu' ef illskufól flærðir með um foldarból læðast og launráð brugga. Bíum, bíum, bambaló, bambaló og dillidillidó. Vini mínum vagga ég í ró, en úti bíður andlit á glugga.