Bíum, bíum, bambaló
[Am]Bíum, [E7]bíum, [Am]bambaló,
[Em]bambaló og [Am]dillidillidó.
Vini [E7]mínum [Am]vagga ég í [F]ró,
en [Em]úti bíður [E7]andlit á [Am]glugga.
Þegar [E7]fjöllin [Am]fimbulhá
[Em]fylla brjóst þitt [Am]heitri þrá,
leika [E7]skal ég [Am]langspil [F]á,
[Am]það mun þinn [Em]hugann [Am]hugga.
Bíum, bíum, bambaló,
bambaló og dillidillidó.
Vini mínum vagga ég í ró,
en úti bíður andlit á glugga.
Þegar veður geisa grimm,
grúfir yfir hríðin dimm,
kveiki ég á kertum fimm,
burtflæmi skammdegisskugga.
Bíum, bíum, bambaló,
bambaló og dillidillidó.
Vini mínum vagga ég í ró,
en úti bíður andlit á glugga.
Ef þér sultur sverfur að,
sauðakjöt ég hegg í spað,
fljótt svo standi full með það
tunna hver, dallur og dugga.
Bíum, bíum, bambaló,
bambaló og dillidillidó.
Vini mínum vagga ég í ró,
en úti bíður andlit á glugga.
Ef þig langar eitthvert sinn
ögn að smakka góðfiskinn,
fram ég sendi flotann minn:
skínandi skútur og kugga.
Bíum, bíum, bambaló,
bambaló og dillidillidó.
Vini mínum vagga ég í ró,
en úti bíður andlit á glugga.
Hjá mér bæði hlíf og skjól
hafa skaltu' ef illskufól
flærðir með um foldarból
læðast og launráð brugga.
Bíum, bíum, bambaló,
bambaló og dillidillidó.
Vini mínum vagga ég í ró,
en úti bíður andlit á glugga.