Aravísur Hann [C]Ari er [G7]lítill. Hann er [C]átta ára ,,trítill" með [G7]augu svo falleg og [C]skær. Hann er bara [G7]sætur, jafnvel [C]eins, er hann [Am]grætur og [D7]hugljúfur þegar hann [G7]hlær. En [C]spurningum [A7]Ara er ei [Dm]auðvelt að svara: Mamma [D7]af hverju er himininn [G]blár? Sendir [F]Guð okkur [C]jólin? Hve [F]gömul er [C]sólin? Pabbi, [Dm]því hafa [G]hundarnir [C]hár? Bæði [C]pabba og [G7]mömmu og [C]afa og ömmu þreytir [G7]endalaust spurninga [C]suð: Hvar er sólin um [G7]nætur? Því er [C]sykurinn [Am]sætur? Afi, [D7]gegndu, hver skapaði [G7]Guð? Hvar er [C]heimsendir [A7]amma? Hvað er [Dm]eilífðin, mamma? Pabbi, [D7]af hverju vex á þér [G]skegg? Því er [F]afi svo [C]feitur? Því er [F]eldurinn [C]heitur? Því [Dm]eiga ekki [G]hanarnir [C]egg? Það [C]þykknar í [G7]Ara, ef [C]þau ekki svara og [G7]þá verður hann ekki [C]rór, svo heldur en [G7]þegja, þau [C]svara og [Am]segja: Þú [D7]veist það, er verðurðu [G7]stór. Fyrst [C]hik er á [A7]svari, þá [Dm]hugsar hann Ari og [D7]hallar þá kannski undir [G]flatt og [F]litla stund [C]þegir, að [F]lokum hann [C]segir: Þið [Dm]eigið að [G]segja mér [C]satt.