Aðfangadagskvöld [C]Nú er gunna' á nýju skónum, nú eru' að [D7]koma [G]jól, [C]Siggi er á síðum buxum, [D7]Solla' á [G7]bláum [C]kjól. [F]Solla' á bláum kjól, Solla' á bláum [G7]kjól, [C]Siggi er á síðum [Am]buxum, [D7]Solla' á [G7]bláum [C]kjól. Mamma' er enn í eldhúsinu eitthvað að fást við mat, indæla steik hún er að færa upp á stærðar fat. Upp á stærðar fat, upp á stærðar fat, indæla steik hún er að færa upp á stærðar fat. Pabbi enn í ógnar basli á með flibban sinn: Fljótur Siggi, finndu snöggvast flibbahnappinn minn. Flibbahnappinn minn, flibbahnappinn minn, Fljótur Siggi, finndu snöggvast flibbahnappinn minn. Kisu' er eitthvað órótt líka, út fer brokkandi, ilmurinn úr eldhúsinu er svo lokkandi. Er svo lokkandi, er svo lokkandi ilmurinn úr eldhúsinu er svo lokkandi. Á borðinu' ótal bögglar standa, bannað að gægjast í. Kæru vinir, ósköp erfitt er að hlýða því. Er að hlýða því, er að hlýða því. Kæru vinir, ósköp erfitt er að hlýða því. Jólatréð í stofu stendur, stjörnuna glampar á, kertin standa' á grænum greinum, gul og rauð og blá. Gul og rauð og blá, gul og rauð og blá. kertin standa' á grænum greinum, gul og rauð og blá.