Aðfangadagskvöld



[C]Nú er gunna' á nýju skónum,
nú eru' að [D7]koma [G]jól,
[C]Siggi er á síðum buxum,
[D7]Solla' á [G7]bláum [C]kjól.
[F]Solla' á bláum kjól,
Solla' á bláum [G7]kjól,
[C]Siggi er á síðum [Am]buxum,
[D7]Solla' á [G7]bláum [C]kjól.

Mamma' er enn í eldhúsinu
eitthvað að fást við mat,
indæla steik hún er að færa
upp á stærðar fat.
Upp á stærðar fat,
upp á stærðar fat,
indæla steik hún er að færa
upp á stærðar fat.

Pabbi enn í ógnar basli
á með flibban sinn:
Fljótur Siggi, finndu snöggvast
flibbahnappinn minn.
Flibbahnappinn minn, flibbahnappinn minn,
Fljótur Siggi, finndu snöggvast
flibbahnappinn minn.

Kisu' er eitthvað órótt líka,
út fer brokkandi,
ilmurinn úr eldhúsinu
er svo lokkandi.
Er svo lokkandi, er svo lokkandi
ilmurinn úr eldhúsinu
er svo lokkandi.

Á borðinu' ótal bögglar standa,
bannað að gægjast í.
Kæru vinir, ósköp erfitt
er að hlýða því.
Er að hlýða því, er að hlýða því.
Kæru vinir, ósköp erfitt
er að hlýða því.

Jólatréð í stofu stendur,
stjörnuna glampar á,
kertin standa' á grænum greinum,
gul og rauð og blá.
Gul og rauð og blá, gul og rauð og blá.
kertin standa' á grænum greinum,
gul og rauð og blá.