Nokkur atriði úr náms- og starfsferli (CV)

1960 Stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík.
1960-67 Nám í (stærðfræði og) eðlisfræði við Niels Bohr stofnunina til cand. scient. - prófs, með sérsviði í kennilegri öreindafræði. Aðstoðarkennari (instruktør) með námi 1966-67.
1967-69 Styrkþegi Vísindasjóðs og síðan við NORDITA (Nordisk Institut for Teoretisk Atomfysik) í Kaupmannahöfn.
1969-71 Sérfræðingur á stærðfræðistofu Raunvísindastofnunar.
1970-71 Fulltrúi Félags háskólakennara í launamálaráði BHM, formaður þess og vann að starfsmati og kjarasamningum á vegum Bandalagsins.
1970-72 Fulltrúi SÍNE í stjórn LÍN. Síðan í nefnd til að semja lagafrumvarp um námslán.
1971-89 Lektor og síðar dósent í eðlisfræði við Háskóla Íslands.
1972-73 Formaður nefnda á vegum iðnaðarráðuneytisins um "Samhæfingu tæknistofnana iðnaðarins" og löggjöf þaraðlútandi um Iðntæknistofnun.
1973-74 Þýddi bókina Endimörk vaxtarins á íslensku.
1973-75 Formaður nefndar á vegum Háskólaráðs til að kanna tengsl Háskólans við aðra skóla ("Tengslanefndar").
1973-76 Starfaði í námshópum á vegum Norræna sumarháskólans um vistfræði og þjóðfélagsmál og um vísindasögu. Fulltrúi Íslandsdeildar í yfirstjórn skólans.
1974-77 Formaður stjórnar Rannsóknastofnunar iðnaðarins.
1975-87 Í stjórn Vísindasjóðs.
1976-77 Formaður í stjórn Félagsstofnunar stúdenta, kosinn af Stúdentaráði.
1977-78 Ársdvöl við Háskólann í Michigan í Ann Arbor, Bandaríkjunum. Lagði stund á vísindaheimspeki og vísindasögu.
1978-82 Formaður stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna og sat í nefnd um ný lög um sjóðinn.
1979-81 Formaður Eðlisfræðifélags Íslands.
1979 Formaður Orkusparnaðarnefndar.
1980-83 Formaður nefndar á vegum iðnaðarráðuneytisins um staðarval fyrir iðnrekstur.
1981- Formaður orðanefndar Eðlisfræðifélags Íslands.
1985-92 Formaður kennslumálanefndar Háskólans. Meðal verkefna: Leiðbeiningar um undirbúning háskólanáms, könnun á kennslu og námskeiðum, tengsl framhaldsskóla og háskóla, stofnun kennslumálasjóðs, umsagnir um lagafrumvörp og margt fleira.
1986-87 Bókin Heimsmynd á hverfanda hveli: Sagt frá heimssýn vísindanna frá öndverðu fram yfir daga Newtons, I-II, kom út.
1987- Unnið að rannsóknum á norrænum vísindum á miðöldum. Greinar og erindi um þær á ýmsum vettvangi.
1988 Dvöl við vísindafræðiskorir Gautaborgarháskóla á vormisseri.
1989 Skipaður prófessor við eðlisfræðiskor raunvísindadeildar HÍ með vísindasögu sem rannsóknasvið.
1993 Styrkþegi við Stofnun Árna Magnússonar í Kaupmannahöfn í tvo mánuði á haustmisseri, við rannsóknir á stjörnufræði og textafræði í Konungsskuggsjá .
1993-96 Í Viðurkenningarráði Hagþenkis
1994 Dvöl við Kaliforníuháskóla í Los Angeles á haustmisseri
1994-95 Formaður fjármálanefndar raunvísindadeildar
1995-96 Fulltrúi Vísindaráðs í nefnd um tilnefningu á bókum fræðilegs og almenns efnis til íslensku bókmenntaverðlaunanna.
1995-97 Forseti raunvísindadeildar Háskóla Íslands.
1996- Í nefnd til að semja frumvarp að lögum um Háskóla Íslands.
1996-97 Hafði yfirumsjón með fyrirlestraröðinni Undur veraldar á vegum raunvísindadeildar og Hollvinafélagas hennar.
1997 Einn af fulltrúum HÍ í nefnd á vegum rektora HÍ, KHÍ og HA um raungreinamenntun í landinu.