Fréttablaðið, 5. janúar, 2008
(ritstjórnarsíða)
Sjálfhverfur
prestur
Steindór J. Erlingsson
Torfi
Stefánsson guðfræðingur tekur undir gagnrýni
mína í gestapistli á bloggsíðu
Halldórs Elíasar Guðmundssonar djákna.
Sr. Gunnar
Jóhannesson tók upp hanskann fyrir Maríu í grein sem
birtist einungis á visir.is.
Hjalti Rúnar Ómarsson
svaraði gagnrýni sr. Gunnars í grein á Vantrúarvefnum
Á síðasta ári var
talsverð umræða í samfélaginu um þátt
kristinnar trúar í menntun barnanna okkar og aðkomu
Þjóðkirkjunnar að grunnskólum landsins. Sjálfur
er ég talsmaður þess að dregið verði úr
vægi kristinnar „fræðslu“ í námi
grunnskólabarna á kostnað veraldlegrar
trúarbragðafræðslu. Einnig er ég eindregið
á móti Vinaleiðinni, sem ég hyggst mæla gegn
með því að styðjast við nýlega
prédikun sr. Maríu Ágústdóttur, „Krafa
Guðs“ (tru.is).
María segir að lesa megi úr
Biblíunni að ástin á guði kristinna manna
sé forsenda þess að geta borið hlýhug til
náungans. Hún gefur í skyn að Jesú hafi
verið ötull talsmaður þessa sjónarmiðs.
Síðan segir hún: „Málið er ekki ‚bara‛
að elska Guð eða ‚bara‛ náungann, heldur er
hvort um sig háð hinu. Án elskunnar til Guðs er erfitt
að koma fram við fólk af kærleika“.
Það sem fyrst blasir við er að
María gefur í skyn að trúleysingjar séu illa
færir um að elska fjölskyldu sína og vini, sem
endurspeglar álíka óupplýst ummæli biskupsins
og annarra þjóna kirkjunnar um trúleysingja og
trúleysi. Ummæli Maríu fela hins vegar í sér
miklu breiðari skírskotun því hún segir
blátt áfram að allir þeir sem ekki hafi
meðtekið kristna trú eigi erfitt með „að koma fram
við fólk af kærleika.“ Hér vegur María
illilega að öllum þeim milljörðum einstaklinga sem ekki
hafa meðtekið boðskap Biblíunnar.
Það er með ólíkindum
að nokkur geti haldið fram viðlíka sjónarmiðum og
María gerir, sem endurspeglar sjálfhverfuna sem innifalin er
í flestum trúarbrögðum. Ekki dytti mér í
huga að halda því fram að þar sem María
byggir siðferði sitt á trú á guð, sem að
öllum líkindum er ekki til, eigi hún erfitt með
„að koma fram við fólk af kærleika.“ Ég
amast ekki yfir því að María spúi þessu
eitri óumburðarlyndis yfir söfnuð sinn en ég efast
stórlega um að veita eigi henni og skoðanasystkinum hennar innan
Þjóðkirkjunnar beinan aðgang að börnunum okkar
innan veggja grunnskólans.
Í pistlinum segir Torfi m.a.:
“Ég vil benda ykkur annálslesendum á grein sem
Steindór J. Erlingsson skrifaði í Fréttablaðið
í dag, 5. febrúar 2008. Þar gagnrýnir hann með
réttu sr. Maríu Ágústsdóttur fyrir
fullyrðingu hennar í predikun sem birtist á tru.is ... Steindór gagnrýnir þessa
fullyrðingu á þeirri forsendu að sr. María
sé með þessu að gefa ”í skyn að
trúleysingjar séu illa færir um að elska”
sína nánustu. Ég er sammála Steindóri
í gagnrýni hans ... En sr. María er ekki sú eina
sem gerir þessi mistök eins og Steindór bendir á.
Mistökin ná alla leið upp í æðstu
embætti íslensku þjóðkirkjunnar og gerir alla
umræðu um þátt kristinnar trúar í menntun
íslenskra ungmenna og aðkomu kirkunnar
að grunnskólum landsins miklu erfiðari en þyrfti”.