Er þróunarkenningin tilgáta?

Í viðtali í síðdegisútvarpi Rásar 2 þann 4. september, 2006, talaði sr. Örn Bárður Jónsson á mjög ábyrgðarlausan hátt um þróunarkenninguna og gaf til að mynda í skyn að hún væri „bara“ tilgáta sem vísindin gætu hvenær sem losað sig við.  Strax að loknu viðtalinu sendi í umsjónarmönnum síðdegisútvarpsins eftirfarandi póst:

Það var sorglegt hlusta viðtal ykkar við sr. Örn Bárð um þróunarkenninguna og kristna trú.  Það kom svo greinilega í ljós Örn veit EKKERT um þróunarkenninguna og sögu hennar.  Hann talaði ýmist um hana sem „tilgátu“ og „kenningu“, en allir þeir sem eitthvað vita sögu og heimspeki raunvísinda vita grunvallar munur er á þessum hugtökum.  Í þessu sambandi bendi ég ykkar á svar mitt við spurningunni Er þróunarkenningin bara kenning eða er hún staðreynd?.

Ykkur hefði verið í lófa lagið einhvern í viðtalið með Erni, sem raunverulega hefur vit á hlutunum.  Guðfræðimenntun gerir menn ekki sjálfkrafa sérfræðinga í umræðunni um trú og vísindi.  

Umsjónarmennirnir brugðust vel við þessu skeyti og var mér boðið í viðtal 5. september, þ.e. daginn eftir viðtalið við prestinn, til þess að halda uppi vörnum fyrir þróunarkenninguna: