Fréttablaðið (ritstjórnarsíða), 21. desember, 2006

Þjóðkirkjan, umburðarlyndi og heimska

Steindór J. Erlingsson

Í byrjun desember stofnuðu þrettán trúfélög hér á landi Samráðsvettvang trúfélaga, en markmið hans er samkvæmt fréttum „að stuðla að umburðarlyndi og virðingu milli fólks af ólíkum lífsviðhorfum, trúarhópum og trúarbrögðum og standa vörð um trúfrelsi og önnur mannréttindi“.  Þjóðkirkjan er eitt þeirra trúfélaga sem aðild eiga að samráðsvettvanginum. Þátttaka hennar í þessum félagsskap fór hins vegar ekki vel af stað því nokkrum dögum eftir stofnun hans birtist á vef Þjóðkirkjunnar prédikun eftir sr. Birgi Ásgeirsson þar sem því er haldið fram að þeir sem hafna meintri tilvist Guðs kristinna manna séu „hluttakendur heimskunnar“.   

            Á einum stað í prédikuninni segir að mesta „hættan [sé] fólgin í afneituninni. Afneitun staðreynda. Afneitun Guðs. Afneitun þess að maðurinn er hluti sköpunarinnar. Afneitun þess að við erum Guðs börn og þurfum á því að halda að eiga samfélag við hann“. Hættan sem stafar af því að afneita Guði virðist samkvæmt sr. Birgi vera hnignun menningarinnar, en merki hennar „kemur helst fram, þegar við reynum að sníða trúna að eigin sjálfhverfu, duttlungum og hroka. En þannig verðum við einmitt hluttakendur heimskunnar. Heimskinginn segir: enginn Guð“.

            Greinilegt er af samhengi sr. Birgis að þessum gagnrýnu ummælum er beint til trúleysingja og varpa þau sem slík skírara ljósi á hann sjálfan en þá sem hann gagnrýnir. Í sjálfhverfu sinni, svo við styðjumst við orðalag sr. Birgis, virðist hann hins vegar gleyma því að það eru ekki bara trúleysingjar sem hafna meintri tilvist Guðs kristinna manna, því allir þeir sem ekki játa kristna trú eru trúlausir gagnvart hinum kristna Guði. Samkvæmt skilgreiningu sr. Birgis eru því vel á fimmta milljarða jarðabúa, þ.e. allir þeir sem ekki játa kristna trú, heimskingjar. Þar sem þessi prédikun birtist á opinberum vef Þjóðkirkjunnar, www.tru.is, hlýtur málflutningur sr. Birgis að njóta stuðnings innan vébanda hennar. Ef sú er raunin ættu Baháísamfélagið, Félag Múslima á Íslandi, Ásatrúarfélagið, Búddistafélagið og önnur félög sem taka þátt í Samráðsvettvangi trúfélaga að vara sig á því að innan Þjóðkirkjunnar eru áhrifamiklir einstaklingar sem álíta meðlimi þessara félaga heimskingja.

HEIM