Tímariti félagsráðgjafa, 5(1): 5-14, 2011

Glímir geðlæknisfræðin við hugmyndafræðilega kreppu?

Um vísindi og hagsmuni

Steindór J. Erlingsson

 


Umfjöllun: Morgunblaðið, DV, Vilhjálmur Ari Arason.

Útdráttur

Á undanförnum árum hefur sú mynd framfara, sem dregin hefur verið af geðlæknisfræðinni undanfarna þrjá áratugi, sætt vaxandi gagnrýni. Sumir geðlæknar ganga raunar svo langt að tala um að hugmyndafræðileg kreppa ríki innan greinarinnar. Er þetta m.a. rakið til ofuráherslu á líffræðilegar skýringar á orsökum geðraskana og mikillar notkunar geðlyfja. Flokkunarkerfi geðlæknisfræðinnar virðist einnig vera hluti af vandanum. Það virðist hafa valdið því að fjöldi þeirra einstaklinga, sem hægt er að greina með geðröskun, hefur aukist verulega og við það hefur markaður lyfjafyrirtækja vaxið mjög. Á undanförnum áratugum hefur lyfjaiðnaðurinn farið fram með slíkum þunga við markaðssetningu nýrra lyfja að vísindalegur heiðarleiki hefur alltof oft vikið fyrir markaðshagsmunum. Með þessu móti hefur heilbrigðisstarfsfólk verið afvegaleitt, að ekki sé talað um almenning og þá sem neyta lyfjanna. Í þessari umfjöllun verður litið nánar á þessa þróun og kannað hvað hæft er í kreppuhugmyndinni.

Lykilorð: Geðraskanir, flokkunarfræði, geðlæknisfræði, geðlyf, lyfjaiðnaður, afvegaleiðing, gagnrýni.

Abstract

In recent years the notion that psychiatry has experienced significant progress during the past thirty years has witnessed increasing criticism. Some psychiatrists even argue that an intellectual crisis exists within the field. This is tied e.g. to the dominance of biological explanations as the cause of mental disorders and over-prescription of psychotropic drugs. Psychiatry’s nosological system also seems to be part of the problem. It seems to have contributed to a significant increase in the number of individuals that can be diagnosed and in the process opened up a big market for the pharmaceutical industry. In recent decades the marketing efforts of the industry have been so aggressive that too often scientific integrity has given way to commercial interests. As a result, health professionals have been deceived, not to mention consumers and the general public. This paper explores these issues and examines the worth of the crisis thesis.

Keyword: mental disorders, nosology, psychiatry, psychotropic drugs, pharmaceutical industry, deception, criticism.


 

Eftir útgáfu greinarinnar verður hægt nálgast hana hér.

HEIM