Morgunblaðið, 17. apríl 2001

Dálítil athugasemd frá ,,flóttamanni``

Steindór J. Erlingsson

HINN 6. febrúar síðastliðinn hélt undirritaður erindi á ráðstefnu í París þar sem rætt var um líftækni og áhrif hennar á samfélagið. Að ráðstefnunni stóðu L'Association Diderot, sem er félagsskapur vísindafræðinga í Frakklandi, og háskólinn í París. Á ráðstefnunni hélt ég erindi er í lauslegri þýðingu nefndist:,,Hvernig stórfyrirtæki blekkti auðtrúa þjóð.`` Þar var blaðamaður frá Le Monde sem hafði mikinn áhuga á erindinu og umræðum sem á eftir fylgdu. Gaf hann sig á tal við mig og spurði hvort hann gæti fengið eintak af erindinu. Kvað ég já við, hann fékk eintakið og ræddum við síðan örstutt saman. Eftir það heyrðist ekkert í blaðamanninum fyrr en frá honum barst tölvupóstur 15. febrúar þess efnis að ég yrði á forsíðu Le Monde daginn eftir!

Íslenskir fjölmiðlar fjölluðu um málið, en ýmislegt í Le Monde-fréttinni var eigi á rökum reist. Í erindinu var ég mjög gagnrýninn á íslensk stjórnvöld og Íslenska erfðagreiningu og í umræðum að því loknu sagði ég í hálfkæringi að allt eins mætti líta á mig sem erfðafræðilegan flóttamann, en ætlaðist auðvitað ekki til þess að það yrði tekið bókstaflega. En viti menn, þetta var gert að meginefni annars ágætrar fréttar. Ég er andvígur stefnu stjórnvalda í gagnagrunnsmálinu en hef ekki flúið land. Eftir á að hyggja var þessi rangfærsla til góðs og málstað Mannverndar mjög til framdráttar vegna þess að hún vakti nýjar umræður um málið.

Eins og bent er á í nýjasta Stúdentablaðinu höfðu íslenskir fjölmiðlar ekki samband við mig. Í stað þess að spyrja af hverju óþekktur Íslendingur, sem að sögn Le Monde taldi sig flóttamann, var á forsíðu eins helsta dagblaðs Frakklands fjölluðu þeir um fréttina án þess að fylgja henni eftir. Hefði ég verið íslenskur blaðamaður hefði mitt fyrsta hugboð verið að fréttin hlyti að vera vafasöm og rétt að bera hana undir,,flóttamanninn``, því Íslendingar eru ekki á hverjum degi á forsíðum heimspressunnar.

Ég vil því ítreka að ég er ekki flúinn til Englands, ég er þar við nám. Rétt er einnig að leiðrétta annan misskilning franska blaðamannsins. Í frétt Le Monde er sagt að ég hafi orðið fyrir þrýstingi innan Háskóla Íslands vegna afskipta minna af gagnagrunnsdeilunni. Þetta er rangt! Á ráðstefnunni gat ég þess að ég hefði fengið ábendingar um að þessi afskipti mín yrðu mér ekki til framdráttar en þær komu ekki frá Háskóla Íslands því eins og einn af mörgum vinum mínum innan þeirrar stofnunar benti mér á væri það alls ekki lagt mönnum til lasts í háskólanum að hafa skipt sér af deilunni um Íslenska erfðagreiningu á hvorn veginn sem er.

Erindið sem ég hélt verður gefið út í bók í Frakklandi í lok apríl, ásamt öðrum erindum á ráðstefnunni og geta þeir sem vilja kynnt sér efni þess á ensku og frönsku á heimasíðu minni. Slóðin er: www.raunvis.hi.is/~steindor/gagn.html.