Reykjavík 24. september 2009

 

Fræðslubæklingur um þunglyndi – stöðvun dreifingar

 

Það eru liðin um tíu ár frá því fræðslubæklingur GlaxoSmithKline um þunglyndi var fyrst gefinn út. Frá þeim tíma hafa orðið framfarir í meðferð þunglyndis, bæði hvað varðar lyf og önnur úrræði fagaðila. Mikilvægasta breytingin er þó hugsanlega sú vitundarvakning sem átt hefur sér stað varðandi þunglyndi og einkenni þess og að dregið hefur úr fordómum og fáfræði um sjúkdóminn. Útgáfa bæklings GlaxoSmithKline um þunglyndi hafði ekki hvað síst  þetta að markmiði.

 

GSK hefur borist ábending um að úrbóta sé þörf á fræðslubæklingi um þunglyndi. Fyrirtækið fagnar öllum rökstuddum ábendingum og ætlar að yfirfara efni bæklingsins í ljósi þess. Á meðan sú athugun fer fram, verður ekki um frekari dreifingu á honum að ræða hjá Distica. Jafnframt óskar fyrirtækið þess, að frekari dreifing á bæklingnum í apótekum eða heilbrigðisstofnunum verði stöðvuð.

 

Nánari upplýsingar má fá hjá GlaxoSmithKline ehf.

 

Virðingarfyllst,

 

Hjörleifur Þórarinsson,

framkvæmdastjóri