Morgunblaðið, 13. október, 2009
Alvarlegar rangfærslur fyrirtækis
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
LYFJAFRAMLEIÐANDINN GlaxoSmithKline hefur sent
bréf til allra apóteka og heilbrigðisstofnana á Íslandi og beðið um að
bæklingur um þunglyndi, sem fyrirtækið gaf út árið 2000 og hefur staðið fólki
til boða á fyrrgreindum stöðum, verði tekinn úr umferð. Ástæðan er sú að í
bæklingnum var gefið í skyn að lyf væru eina aðferðin til að lækna þunglyndi og
sálfræðimeðferð væri gagnslítil í baráttunni við sjúkdóminn.
Bæklingurinn hafði legið frammi fyrir almenningi í hartnær áratug eða
þangað til Steindór J. Erlingsson vísindasagnfræðingur las bæklinginn í byrjun
janúar sl., sá að upplýsingar í honum stönguðust á við rannsóknir sem sýndu að
þunglyndislyf væru ekki eins virk og áður hafði verið talið, og kærði
bæklinginn til landlæknis.
Óbeinn
áróður fyrir lyf
„Ég skrifaði formlega kæru til landlæknis, með fjölda vísana í
vísindagreinar, þar sem ég benti á að í bæklingnum væru ýmsar rangar
upplýsingar varðandi orsakir þunglyndis og meðferð við því,“ segir Steindór.
Hann bætir því við að landlæknir hafi boðið honum á sinn fund og í kjölfarið
var kæran lögð inn til sérfræðinga. Þeir tóku undir flest atriði í kæru
Steindórs og úr varð að landlæknir sendi forstjóra Lyfjastofnunar bréf í mars
þar sem þess var krafist að stofnunin tæki bæklingin
úr umferð í ljósi rangra upplýsinga.
Þegar ekkert hafði verið aðhafst um miðjan
septembermánuð hafði Steindór aftur samband við landlækni sem þá setti sig
beint í samband við GlaxoSmithKline. Bæklingurinn var
tekinn úr umferð en til stendur að endurskrifa hann.
„Það er bannað að vera með lyfjaauglýsingar í blöðum en þarna var
lyfjafyrirtæki að nota þann möguleika að gefa út bækling með óbeinum áróðri
fyrir þunglyndislyf,“ segir Steindór og bætir við að rangfærslur í bæklingnum
gætu haft eitthvað með það að gera að miðað við höfðatölu sé neysla Íslendinga
á þunglyndislyfjum með því mesta sem gerist í heiminum.
Snerti hann
persónulega
Aðspurður segir Steindór að efni bæklingsins hafi snert hann
persónulega. „Ég hef átt við alvarleg geðræn vandamál að stríða og hef notað
lyf í miklum mæli. Það er mjög alvarlegt að skilaboðin í bæklingnum voru þau að
eina leiðin til að meðhöndla þunglyndi væru lyf. Það var sagt að
sálfræðimeðferð hefði ekki áhrif á efnaójafnvægi sem orsakaði þunglyndi en
tengslin milli þunglyndis og magns serótóníns eru
ósönnuð. Það vita allir sem hafa lent í þunglyndi að það er ýmislegt annað en
lyf sem er hægt að nota til að vinna bug á meininu,“ segir hann.
Steindór segir persónubundið hvað henti hverjum og einum en fyrir hann
hafi hugræn atferlismeðferð og hreyfing gagnast mjög vel. „Þessi nýju
þunglyndislyf valda eituráhrifum hjá mér svo ég þoli ekki nein lyf í dag. Ég er
að kljást við þunglyndi lyfjalaust.“
Sálræn samtalsmeðferð hefur engin áhrif
Úr bæklingi GlaxoSmithKline sem nú hefur verið
tekinn úr umferð:
„Sálfræðileg samtalsmeðferð hefur lítil áhrif á þá röskun
í efnajafnvægi heilans sem orsakar sjúkdóminn. Lyfjagjöfinni er ætlað að koma
aftur á serótónínjafnvægi í heilanum.“