Morgunblaðið, 14. október, 2009

Fræðslubæklingur GSK um þunglyndi

 

Í FRAMHALDI af frétt Morgunblaðsins í gær um að kvartað hafi verið til landlæknis vegna bæklings GlaxoSmithKline (GSK) um þunglyndi þar sem í honum væri gefið í skyn að lyf væru eina aðferðin til að lækna þunglyndi vill GSK á Íslandi taka eftirfarandi fram:


„Bæklingur GSK um þunglyndi var fyrst gefinn út árið 1999. Um var að ræða þýðingu á dönskum bæklingi en leitað var faglegrar ráðgjafar og efnið staðfært í samvinnu við íslenskan geðlækni. Á því tíu ára tímabili sem bæklingurinn hefur verið í dreifingu hefur fyrirtækið ekki fengið neinar athugasemdir vegna innihalds hans eða efnistaka fyrr en félagið fékk til umsagnar afrit af kvörtun dr. Steindórs J. Erlingssonar til landlæknis fyrr á þessu ári. Í svarbréfi GSK á Íslandi til landlæknis var tilkynnt að félagið myndi endurskoða bæklinginn og að á meðan sú endurskoðun færi fram yrði frekari dreifing hans stöðvuð.


Frá því bæklingur GSK um þunglyndi kom fyrst út hafa orðið margvíslegar framfarir í meðferð þunglyndis bæði hvað varðar lyf og önnur úrræði fagaðila. Mikilvægasta breytingin er þó hugsanlega sú vitundarvakning sem átt hefur sér stað um þunglyndi og einkenni þess og að dregið hefur úr fordómum og fáfræði um sjúkdóminn. Útgáfa bæklings GSK um þunglyndi hafði ekki hvað síst þetta að markmiði.


GlaxoSmithKline er umhugað að fræðsluefni á vegum fyrirtækisins endurspegli bestu vitneskju hverju sinni. Fræðslubæklingur um þunglyndi var sá fyrsti sem gefinn var út af GSK hér á landi um geðsjúkdóma og í kjölfar hans komu út bæklingar um ofsakvíða, áráttu- og þráhyggjuröskun, almenna kvíðaröskun og geðhvörf. Samhliða endurskoðun á efni þunglyndisbæklings verður þetta fræðsluefni nú einnig yfirfarið í samráði við innlenda sérfræðinga.“


Hjörleifur Þórarinsson

framkvæmdastjóri

 

HEIM