Stúdentafagnaður Nemendasambands Menntaskólans í Reykjavík
laugardagskvöldið 31. maí 2003
Ágætu júbilantar og makar
Senn líður að árlegum stúdentafagnaði Nemendasambands MR.
Fagnaðurinn verður haldinn laugardaginn 31. maí nk. í Súlnasal Hótel
Sögu. (athugið að gengið er inn frá Suðurgötu). Húsið opnar kl. 19:00 og
borðhald hefst kl. 20:00. Það er áætlað að því ljúki um kl. 23:00.
Strengjasveit skipuð nemendum úr MR mun spila við innganginn.
Veislustjóri verður Steinunn Sigurðardóttir, rithöfundur.
Matseðill
Basil og engifer kryddaður silungs carpaccio
Kryddleginn lambaframhryggsvöðvi í „Balsamico“ með
beikonvöfðum kartöfluflögum
Peru og súkkulaðifrauð „Belle Helene“
eða grænmetisafbrigði
Villisveppasúpa
Grillað grænmeti á basilrizotto og klettasalati
Ávaxtadiskur „Balsamico“.
Fulltrúar 25 ára og 50 ára stúdenta og inspector scholae flytja ávörp.
Védís Skarphéðinsdóttir talar fyrir hönd 25 ára stúdenta. Arnaldur Arnarson mun
leika á gítar fyrir hönd 25 ára stúdenta.
Fjöldasöngur.
Hljómsveitin Desmond leikur fyrir dansi eftir að borðhaldi lýkur frá
því um kl. 23:00.
Vinsamlegast látið ofangreindar upplýsingar berast til félaga ykkar.
Þess er vænst að þeir sem fara fyrir júbilöntum í ár láti stjórn
Nemendasambandsins vita sem fyrst um áætlaðan fjölda þátttakenda ásamt mökum í
stúdentafagnaðinum.
Hægt er að hafa samband við Sigríði Vilhjálmsdóttur 528.1054 (vs.)
551.4406 (hs.) eða Svein Snæland 696.9533 (gsm) ef óskað er frekari upplýsinga.
Með góðri kveðju,
Stjórn Nemendasambands Menntaskólans í Reykjavík