Lífshlaup

Sigurður Reynir Gíslason
Október 2010

Uppruni

Fæddur 9. október 1957 í Reykjavík

Menntun


Johns Hopkins háskólinn í Bandaríkunum, 1980-1985, Ph.D. í jarðefnafræði 1985.
Háskóli Íslands, 1977-1980, B.S. í jarðfræði 1980.
Menntaskólinn við Tjörnina, 1973-1977, stúdent 1977.

Doktorsritgerð:
Meteoric water-basalt interactions: A field and laboratory study

Núverandi staða


Fastráðinn vísindamaður við Jarðvísindastofnun Háskólans

Fagfélög


The Geochemical Society
The European Association for Geochemistry
Jarðfræðafélag Íslands
Vísindafélag Íslendinga

Starfsferill 1985-2006

Sérfræðingur á Raunvísindastofnun, frá nóvember, 1985 til 31. desember, 1990. Fræðimaður, frá 1. janúar, 1991 til 31. maí 1994, fastráðinn fræðimaður við Raunvísindastofnun frá 1. júní, 1994, og loks fastráðinn vísindamaður 1. janúar 1996. Á tímabilinu 1986-2006 hafa helstu áherslur verið á jarðefnafræði úrkomu, yfirborðsvatns, jarðvegsvatns, grunnvatns og jarðhitavatns. Efnaskipti lofts, vatns, bergs, jarðvegs og lífvera. Mengun vatns vegna athafna mannsins og eldfjalla. Hraði veðrunar bergs og áhrif veðrunar á hringrás kolefnis á Jörðinni. Rannsóknir á efnaskiptum vatns, bergs og steinda með tilraunum á rannsóknarstofu. Þessar rannsóknir haf verið styrktar af RANNÍS, Rannsóknarsjóði Háskólans, Fulbright, Evrópusambandinu, Vísindasjóði Evrópu í gegnum EURESCO, NERC (Breska náttúruvísindasjóðnum), Raunvísindastofnun, Háskólunum í Toulouse og Stokkhólmi og Jarðvísindastofnun eftir 2003.

  • Verkefnisstjóri: Efnarannsókna á vatnasviði Skaftár 2002-2006 á vegum Landsvirkjunar í samstarfi Jarðvísindastofnunar og Vatnamælinga. Efnarannsókna straumvatna á Austurlandi 1998-2004 á vegum Umhverfisráðuneytisins, Landsvirkjunar, Orkustofnunar og Jarðvísindastofnunar vegna alþjóðlegra skuldbindinga um losun eiturefna í sjó og virkjunarframkvæmda. Efnarannsókna vegna Grímsvatnahlaups í október 2004 og nóvember 1996 á vegum Vegagerðarinnar í samstarfi Jarðvísindastofnunar og Vatnamælinga. Efnarannsókna straumvatna á Suðurlandi 1996-2006 á vegum Umhverfisráðuneytisins og Landsvirkjunar vegna alþjóðlegra skuldbindinga um losun eiturefna í sjó og virkjunarframkvæmda. Efnarannsókna á Grundartanga vegna stækkunar Járnblendiverksmiðjunnar og byggingar álverksmiðju Norðuráls 1997-1998. Efnarannsókna á vatnasviði Elliðaánna í Reykjavík á vegum Borgarverkfræðings og Rafmagnsveitu Reykjavíkur 1997-1998.

  • Kennsla við Raunvísindadeild, Verkfræðideild og , Endurmenntunardeild Háskóla Íslands og umsjón með innlendum og erlendum meistara- og doktorsprófsverkefnum. Kennsla við Eldfjallarannsóknastöðina á Azoreyjum, Portúgal 1992 og 1993.

  • Forseti “The Geochemistry of the Earth’s Surface” (GES) frá 2005.  GES er einn af 7 verkefnahópum International Association of Geochemistry

  • Forseti Evrópuráðstefnunnar Geochemistry of Crustal Fluids sem haldin var í Granada á Spáni í desember, árið 2000. Varaforseti samnefndrar ráðstefnu sem haldin var á Krít, Grikklandi, í maí, 1998. Forseti The Fifth International Symposium on the Geochemistry of the Earth's Surface sem haldin var í Reykjavík, í ágúst, 1999.

  • Í ritstjórn Chemical Geology, tímarit "the European Association for Geochemistry" frá 1994. Gestaritsjóri sérheftis Chemical Geology, 190, issue 1-4, October 2002.

  • Í stjórn European Association for Geochemistry frá 2002. Sat í Goldschmidt Medal Committee of the Geochemical Society" frá 2002-2005 og var formaður nefndarinnar 2004-2005. Goldschmidt orðan er æðsta orðan sem sambandið veitir. Hef setið í "Geochemistry Fellows Selection Committee" fyrir European Association for Geochemistry og Geochemical Societyfrá árinu 2005

  • Andmælandi við doktorsvarnir í Toulouse í Frakklandi 1994, Stokkhólmi 1998, Toulouse 1998 og Yale 1999. Meðleiðbeinandi tveggja doktorsverkefna við "Open University, UK" frá árinu 2005. Rannsóknarleyfi við Johns Hopkins háskólann í Bandaríkjunum 1987 og við Paul Sabatier háskólann í Toulouse í Frakklandi 1994, og 1998.

  • Fulltrú Háskóla Íslands in vinnuhópi um lögleiðingu vatnatilskipunar ESB á Íslandi 2002-2004. Fulltrúi Vatnafræðifélagsins í Íslensku vatnafræðinefndinni 2002-2006. Fulltrúi Raunvísindastofnunar í samninganefnd um stofnun Jarðvísindastofnunar Háskólans 2004.

  • Fulltrúi Íslands í alþjóðlega verkefninu ARCTIS sem beinist að því að skilgreina hnattræna loftborna mengun á norðurhveli jarðar. Sat í vinnuhópi ("Projektgruppe") á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar um stöðlun á efnagreiningum á drykkjarvatni.

  • Ráðgjöf fyrir verkfræðistofuna Hönnun hf., Norðurál, Kísiliðjuna við Mývatn, Mjólkursamsölu Reykjavíkur, Íslenskt bergvatn h.f., og Mjólkursamlag Borgfirðinga.


Viðurkenningar

In August 2010, The International Association of GeoChemistry presented the IAGC Certificate of Recognition to Sigurdur Gislason, University of Iceland for insightful research on basalt weathering and its importance in the long-term carbon cycle, and for serving IAGC as leader of the IAGC Working Group on Geochemistry of the Earth’s Surface.