Samtök gegn bökuðum rúsínum

Samtök gegn bökuðum rúsínum eru samtök sem eru gegn bökuðum rúsínum.

Meginályktun

Samtök gegn bökuðum rúsínum berjast fyrir útrýmingu á rúsínum úr öllum bökuðum mat. Rúsínur eru þurrkuð vínber og við hitun í ofni afmyndast rúsínurnar og hafa eyðileggjandi áhrif á matinn sem þær kunna að vera í. Bakaður matur með rúsínum telst t.d. jólakaka, smákökur með rúsínum, grjónagrautur með rúsínum og rúsínuslátur.
Rúsínur eiga ekki heima í mat sem eldaður eða hitaður er þótt samtökin gera ekki athugasemdir við rúsínur einar og sér. Samtök gegn bökuðum rúsínum hvetja matvælaframleiðendur til að láta af notkun rúsína í mat hið snarasta.

Nóvember 2006

Félagatal

Ragnar Björnsson
Björn Gunnarsson
Hjalti Brynjarsson
Jón Heiðar Þorsteinsson
Dagur Gíslason
Gunnar Björnsson
Arna Björk Gunnarsdóttir
Sigurbjörn Ottó Björnsson
Guðmundur Björn Eyþórsson

Uppfært 10. september 2008


Þeir sem áhuga hafa á að ganga í samtök gegn bökuðum rúsínum og fá þar með nafn sitt í félagatal skulu senda tölvupóst á Ragnar. Skilyrði fyrir inngöngu í samtökin er yfirlýst óánægja með rúsínur í bökuðum mat.