Erfðabreytt áfram
Mjög áhugavert viðtal við Kára Stefánsson um ræktun erfðabreyttra tegunda.Kári Stefánsson-Ræktun erfðabreyttra tegunda
Um erfðabreytt bygg og lélega vísindamenn
Mbl.is. Þrýstingur á Umhverfisstofnun vegna erfðabreytts byggsAndstæðingar erfðabreyttra lífvera og matvæla eru furðulegt fyrirbæri. Andstaðan virðast fyrst og fremst byggjast á einhvers konar trúarbrögðum og lélegur rökstuðningur minnir helst á kukl.
Rekin er vel upp sett vefsíða full af hræðsluáróðri og vefsíðan er styrkt af ýmsum aðilum, frá heilsubúðum, grænmetisræktendum, kuklfélögum til samtaka eins og Neytendasamtakanna og Landverndar, sem maður hefði haldið að myndu aðhyllast aðeins meiri prófessjónalisma.
Fyrirtækið Orf Líftækni sótti nýlega um leyfi til útiræktunar á erfðabreyttu byggi, ekki ætlað til matvæla heldur sértækri próteinframleiðslu.
Nú er Kristín Vala Ragnarsdóttir, nýr forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskólan Íslands, komin inn í umræðuna, en hún skrifaði opið bréf til umhverfisráðherra þar sem hún lýsti andstöðu við verkefnið ólíkt meirihluta ráðgjafanefndarinnar. Sjá hér
Það er ótrúlegt að lesa rangfærslurnar og hræðsluáróður bréfsins, svo maður tali nú ekki um hvað það er ótrúlegt að misnota aðstöðu sína á þennan hátt til að skapa hræðslu í samfélaginu með því að birta opið bréf á þennan hátt.
Erfðafræðiprófessorar og læknar Háskóla Íslands hafa nú svarað Kristínu:
Opið bréf tveggja prófessora og dósents við HÍ vegna bréfs Kristínar Völu
Bréf Sigurðar Guðmundssonar, forseta heilbrigðisvísindasviðs HÍ, til UST og umhverfisráðherra
Fyrri bréfið sýnir óumdeilanlega að Kristín Vala er að tala sem amatör og að lýsa sinni persónulegu skoðun og að hún væri svo sannarlega ekki að tala fyrir hönd háskólasamfélagsins.
Þess skal reyndar geta að þótt Kristín Vala sé eflaust prýðis jarðefnafræðingur og akademíker þá aðhyllist hún margar aðrar undarlegar, illa rökstuddar hugmyndir. Hún hefur mikinn áhuga heilsu og næringarfræði og hefur haldið fyrirlestra á vegum Krabbameinsfélagsins Framfarar og Manns lifandi.
En sjá má einn fyrirlestur hennar hér: Matarædi til varnar blödruhálskirtils- og brjóstakrabbameins
Sá Powerpoint fyrirlestur inniheldur svo margar rangfærslur að maður trúi því ekki að þarna sé háskólaprófessor að skrifa.
Kemur inn á hættuna á bak við aspartam og MSG (sem enginn fótur er fyrir) og mælir með sýru-basa jafnvægiskúrnum sem er nú með því vitlausara.
Hún segir að maður eigi ekki að borða neitt hvítt (??), ekki tilbúinn eða niðursoðinn mat né bragðaukaefni, alls ekki mjólk, ost, rjóma, jógúrt, skyr, súrmjólk og helst allt saman lífrænt.
Sleggjudómarnir um lækna á glæru 29 eru svo alveg ótrúlegir.
Þá gæti andstæða hennar við erfðabreytt bygg byggst á því að hún telur að inntaka IGF-1 vaxtarhormónsins (sem ræktað verður í bygginu) valdi krabbameini hér á Vesturlöndum þar sem við drekkum mikla kúamjólk (sem getur innihaldið hormón). Eitthvað mætti hún lesa sig meira til um efnafræði og kynna sér fyrirbærið meltingarkerfi líkamans. Próteinhormón eru nefnilega markvisst brotin niður í meltingarveginum í amínósýrur, hormónin berast ekki inn í blóðið.


