málstofa á morgun
School of Chemistry Colloquia:"Computation in Chemistry Seminar
February 23rd, 1.00 pm, Lecture Theatre D
Ragnar Bjornsson (MBue) - Organosilicon chemistry in silico: Conformational analysis of silacyclohexanes and problems with DFT"
Ég ætti kannski að fara undirbúa mig...
þetta væri fyndið...
... ef hún sæti EKKI á Alþingi Íslendinga. Úff..........Mbl.is: Þingmaður og árulesari
sestur á skólabekk aftur
Skráði mig í tvo kúrsa á þessari önn, en ég þarf víst að taka 2-3 kúrsa í doktorsnáminu yfir þessi 3 ár. Það er fínt, voða lítil kúrsaskylda en samt þannig að maður getur skráð sig í eitthvað til að hressa upp á vinnuvikuna.Fór í tíma í dag í báðum kúrsum.
Prótein kristallógrafía eða kristalgreining á próteinum var annar kúrsinn. Fróðlegt að vera í kennslustund á skosku, kennarinn talaðir reyndar skýrt en þó skoskt.
Fór svo í tíma í Fortran forritun fyrir efnafræðinga, sem á eftir að verða gagnlegur kúrs, miðað við hvað ég hef verið latur að læra á eitthvað alvöru forritunarmál í gegnum árin. Nú neyðist ég til þess að gera eitthvað í þeim málum.
Þar talaði kennarinn með hollenskum hreim sem var áhugaverð tilbreyting.
Ég sótti um á þessari önn að fá að kenna verklegt og óskaði eftir að fá að kenna verklegt í ólífrænni eða lífrænni efnafræði, prófessornum mínum til mikillar furðu.
Fékk email um daginn en þá var tölvuefnafræðingnum greinilega ekki treyst til þess að kenna verklega efnafræði og búið að gefa mér hóp til þess að kenna stærðfræði. Mér leist ekki á það og ákvað að hætta við kennsluplön á þessari önn.
íslendingur
Rakst á fyrsta Íslendinginn í St Andrews í gær. Efnafræðing meira að segja. Hverjar eru líkurnar á því ?hómeopatía
Á heiðurinn af ritstjórnarpistili Vantrúar (með hjálp Matta) í dag sem er skot á hómópata sem var í viðtali í Fréttablaðinu. Ágætis hálftíma verk og startaði smá umræðum á forsíðunni.Vantrú.is- Trúir því að líkt lækni líkt
snjór
Það snjóaði í St Andrews í gær, heilmikill bylur bara. Þetta er víst óvanalegt. Fólk talar mjög mikið um þennan snjó á Bretlandi og um fátt annað er rætt í blöðum. Mér leiðist sjálfum óskaplega að tala um veðrið.Er orðinn fíkill í hin skosku shortbread (smjördeigskökur), svo mikill að ég banna mér að kaupa þau lengur. Konan í kaffiteríunni gefur mér þó af og til eitt með kaffinu.
Fann einn af mínum uppáhalds bjórum sem ég hef ekki bragðað lengi í vínbúðinni. Hinn rússneski Baltika, mjög góður bjór. Þegar ég fer á pöbbinn reyni ég svo að bragða á enskum og skoskum ölum, en ég er smám saman að reyna að kynnast einhverju öðru en lagerbjór.
Annars er Stella Artois vinsælasti bjórinn sem keyptur er í matvörubúðum og vínbúðum hérna, virðist vera. Þetta er ágætis bjór þegar hann er bruggaður í heimalandinu (Belgíu) en Bretar virðast ná að klúðra uppskriftinni algerlega.


