jamm og jæja
Byrjaður að kynnast franska póstdokknum á skrifstofunni betur, náði að kenna honum sitthvað um Turbomole, DFT og van der Waals leiðréttingar um daginn en leiðbeinandinn okkar benti á mig sem resident Turbomole expertinn. Þoli ekki þetta forrit sjálfur og nota það sem minnst.Hann plataði mig svo í smá vískísmökkun á barnum um daginn en hann virðist búinn að smakka þónokkuð margar tegundir hérna nú þegar.
Fínn strákur, verst hvað ég á erfitt með að skilja hann og franska hreiminn hans.
Ég á svo víst að fara halda fyrirlestur fljótlega en ég var beðinn um að halda erindi á tölvuefnafræði-málstofu um mastersverkefni mitt. Það verður fróðlegt en stressandi miðað við að ég verð umvafinn tölvuefnafræðingum í þetta skiptið, ólíkt því sem var á meistarafyrirlestri mínum.
Skrapp til Edinborgar seinasta laugardag að gamni. Fór í bókabúð, raftækjabúð, símabúð, hljómflutningstækjabúð og Applebúð. Tókst að villast um tíma í Edinborg en ég taldi mig muna kortið betur en í raun var. Saknaði þess mikið að eiga ekki iPhone þá en þá hefði ég bara getað flett upp staðsetningu minni með GPS og séð kortið í símanum. Er alvarlega að hugsa um að slá til og fjárfesta í einum slíkum.
Keypti mér svo Bad Science eftir lækninn og pistlahöfundinn Ben Goldacre í bókabúðinni, sem fjallar um heilsukukl og léleg vísindi. Lofar mjög góðu.
Í Applebúðinni eyddi ég allt of miklum pening í að kaupa auka rafmagnssnúru fyrir fartölvuna mína. Þetta er bara hugsað til að spara mér 30 sekúndur á hverjum degi sem fer í að ganga frá rafmagnssnúrunni og setja hana niður í tösku. Nú á ég tvær svona snúrur, ein verður heima og hin uppi í vinnu. Úff... skammast mín...
Eyddi mestum pening í að kaupa mér alvöru heyrnartól. Var að nota algert drasl áður með bæði lélegu hljóði og sem voru óþægileg fyrir eyrun. Endaði á því að kaupa mér Sennheiser HD 555 heyrnartól fyrir ahem... hundrað pund. Mæli með þeim.
Það hefur minnkað hlutfallslega í Þjóðkirkjunni. Hlutfall þjóðarinnar sem er í Þjóðkirkjunni er núna minna en 80 %. Þetta er gleðilegt, ríkið mætti svo fara hætta rekstri hindurvitnaklúbbs og spara þar með 5000 milljónir.Mbl.is frétt
Kaffi
visir.is. Ískyggileg tengsl koffeins og ofskynjanambl.is. Segja mikla kaffidrykkju geta leitt til ofskynjana
"Fólk sem drekkur sjö eða fleiri kaffibolla á dag getur átt það á hættu að upplifa vægar ofskynjanir."
Það hljómar ekki nógu vel.
Reyndar drekk ég ekki allt kaffið sem ég fær mér á hverjum degi. Dvergurinn Balinn fær sér líka af því.
Annað: Það er smá munur á fréttaflutningi mbl.is og visir.is á þessari sömu vísindafrétt. Mbl.is menn nafngreina bæði háskólann og tímaritið sem þetta er birt í, á meðan frétt vísis er gríðarlega loðin og engin möguleiki á leita sér frekari upplýsinga.
Ferðalag og kaffi
Er kominn til Skotlands aftur eftir ágætis jólafrí.Á leiðinni heim uppgötvaði ég að sæti mitt í flugvélinni var í 1st class (fremst í vélinni í þægilegu sætunum) þótt ég muni ekki eftir að hafa pantað það. Það var notaleg tilbreyting, í um það bil 5 mínútur, því öllum farþegum í 1st class var skipað að færa sig aftast í vélina þar sem við værum of þung. Hefði ekki átt að borða svona mikið um jólin.
Frá Stansted til St Andrews ákvað ég að ferðast með lest og þar ferðaðist ég á 1st class sem ég var búinn að panta mér fyrirfram. Af undarlegum ástæðum við pöntun var sá miði 10 pundum ódýrari en hinn venjulegi miði. Lestarferðin var bara nokkuð notaleg.
Ég botna ekki í kaffimenningu í þessu landi. Ekki nóg með að Neskaffi úr sjálfsala er það eina sem ég hef séð í boði í efnafræðibyggingunni, þá hef ég heldur aldrei komið auga á svona venjulegar kaffivélar. Hef verið að velta fyrir mér að kaupa mér slíka fyrir skrifstofuna en þetta virðist bara ekki vera til í neinum búðum. Held ég neyðist til að smygla minni eigin vél frá Íslandi við tækifæri.
Á caféteríu í byggingu rétt hjá mér er reyndar hægt að fá uppáhellt kaffi (úr einhverri risamaskínu) en merkilegt nokk er alltaf tebragð af kaffinu. Merkilegt.


