brennum vatn !
Bwahahahaha... ég var búinn að gleyma þessari snilld.Svyturys
Uppáhalds bjórinn minn er kominn í ríkið.Litháenski eðalbjórinn, mæli sterklega með honum. Fæst í Heiðrúnu og Kringlunni.
Svyturys
þíðing
Ísskápurinn var affrystur í dag.Verst ég var ekki á staðnum...
Ah...býrókratía háskólans
Það kannast allir, sem hafa stundað nám við Háskóla Íslands, við býrokratíuna í batteríinu sem Nemendaskrá heitir.Með tilkomu Háskólatorgs, og þar með nýs miðpunkts Háskólans er búið að opna þjónustuborð Nemendaskrár þangað sem maður fer með sín erindi í staðinn fyrir að sýsla við Nemendaskrá sjálfa.
Bjartsýnn maður myndi ætla að þetta þýddi betri stjórnsýslu en svo var ekki raunin þegar ég þurfti á plaggi frá Nemendaskrá að halda í dag.
Hef áður þurft á eins plaggi að halda og þá mætti ég, borgaði og fékk plaggið, tók ca. 5 mínútur. Þetta var í gamla daga.
Í dag fór ég á þjónustuborð Nemendaskrár og fyllti út plagg sem var í raun umsókn fyrir að fá plaggið sem ég er að biðja um. Borgaði 300 kr fyrir og fæ plaggið svo daginn eftir, þegar ég fer og sæki það. Frábært...


