jæja...
Vá hvað ég er latur að skrifa...BNA: Forsetakosningarnar þar úti halda áfram að vera áhugaverðar. Rudy Giuliani, sem lagði allt framboð sitt undir að hann myndi vinna Flórída er sennilega bara búinn. Hann tók þá áhættu að algerlega sleppa fyrstu forvölunum þar sem hann hafði frá upphafi mælst með lítið fylgi og eyddi í staðinn langmestum tíma í Flórída. Hann endaði hins vegar í 3. sæti. Þetta er kandídatinn sem frá upphafi mældist með mesta fylgi repúblíkana yfir allt BNA, en þetta er sennilega bara búið hjá honum. Fred Thompson hafði áður hætt en gerði sér vonir um að með sigri í Suður-Karólínu að hann gæti haldið áfram, hann náði hins vegar ekki góðum árangri þar, hann var lengi vel ein helsta vonarstjarnan.
Hjá repúblíkönum standa nú eftir 3 kandídatar. Mike Huckabee, evangelistinn, Mitt Romney, mormóninn og John McCain, aðeins minna ruglaður en hinir.
Ýmislegt bendir til þess að John McCain sé ná á smá flugi og satt að segja líklegastur til þess að vinna útnefninguna. Enn er þó það jafnt milli þessara þriggja að það geti jafnvel verið að það verði ekki kominn kandídat fyrr en í vor einhvern tímann.
John Edwards er hættur hjá demókrötum sem er að mörgu leyti ágætt enda afskaplega leiðinlegur kandídat. Mér líst ágætlega á bæði Clinton og Obama, vona að þau murki ekki lífið úr hvor öðru áður en annað hvort þeirra vinni útnefninguna. Clinton mælist enn sterkari yfir allt BNA, það að Edwards sé hættur breytir reyndar einhverju og gæti hjálpað Obama. Hann sigraði líka Suður-Karólínu síðast og gæti haldið áfram að taka fylgi frá Clinton.
Þetta skýrist vonandi eitthvað á Super Tuesday, 5. febrúar þegar mörg forvöl verða á sama deginum.
Clinton vinnur New Hampshire
Ég ætla hætta reyna spá fyrir um úrslit einstaka kjördæma þegar svona mjótt er á munum.Clinton vann New Hamsphire með 2 prósentu mun, þrátt fyrir að allar kannanir teknar á bilinu 5. jan -6. jan sýndi að Obama myndi vinna með að meðaltali 8 % mun og með lágu staðalfráviki.
Clinton og Obama fá að vísu sama fjölda kjörmanna fyrir New Hampshire en sálfræðilega skiptir þetta miklu máli ef við miðum við hvað margt breyttist hjá kjósendum eftir Iowa sigur Obama.
Nú verður fróðlegt að fylgjast með forvali í Nevada þann 19. janúar þar sem Clinton hefur verið að mælast mjög há bæði í nóvember og desember (meðaltali 20 % forskot). South Carolina þann 26. jan er hins vegar fylki þar sem staðan er jafnari og Obama er að mælast hærri skv. könnunum síðustu daga.
Hjá repúblíkönum er staðan mjög áhugaverð. Þrjú forvöl hafa farið fram og þrír frambjóðendur unnið: Huckabee, Romney og McCain.
Ómögulegt að spá fyrir um hver eigi eftir að sigra þar.
Forval demókrata snarbreytist
Ég hefði nú aldrei trúað því að sigur Barack Obama í Iowa ætti eftir að hafa eins mikil áhrif og það hefur haft. Hann mun vinna New Hamsphire í dag og skv. nýjustu skoðanakönnunum í South Carolina þá er hann kominn með gott forskot þar. Spurning hvernig Michigan fer en Hillary Clinton verður að vinna þar örugglega ef fólk á ekki gleyma henni. Michigan vegur reyndar mikið miðað við hin fylkin. Skv. skoðanakönnunum í nóvember var hún með 30 % forskot, og nær öruggan sigur, það er spurning hversu mikið það hefur breyst; gat ekki fundið nýrri könnun.Forval repúblíkana er reyndar enn áhugaverðara. John McCain vinnur ef til vill New Hampshire í dag (framboð hans var talið snardautt fyrir nokkrum mánuðum) og Mitt Romney er ekki langt undan. Næstu forvöl gætu svo farið þannig að eftir 5 forvöl repúblíkana væru 4 frambjóðendur búnir að vinna sitt hvert.
Forval repúblíkana
Mike Huckabee vann Iowa fylki. Því hefði enginn trúað fyrir nokkrum mánuðum síðan að Mike Huckabee ætti eftir að verða líklegur frambjóðandi demókrata þegar hann var í 2-3 % á landsvísu og allir spáðu í Giuliani, Thompson og McCain. En þetta hefur breyst og Huckabee er að mælast hár á mjög mörgum stöðum.Hvað hefur breyst ?
Jú, kristnir Bandaríkjamenn hafa fundið sinn kandídat. Mike Huckabee er fyrrverandi prestur hjá Southern Babtist kirkjunni í Bandaríkjunum.
Huckabee styður Íraksstríðið, er á móti fóstureyðingum, á móti hjónabandi samkynhneigðra, á móti því að samkynhneigðir séu í hernum, að lífsstíll samkynhneigðra sé synd, styður dauðarefsingar, styður núverandi vopnaeignarfyrirkomulag í Bandaríkjunum og er sköpunarsinni (trúir sköpunarsögu Biblíunnar en ekki þróunarkenningunni).
Þetta er ef til vill hinn fullkomni kandídat evangelísk-kristinna Bandaríkjamanna og hins svo kallaða 'Republican base'. Og ég held ég gæti ekki verið meira ósammála nokkrum manni.
Það er spurning hvort að þetta verði maðurinn. Annars er þetta einn allsherjar hrærigrautur hjá repúblíkönum skv. skoðanakönnunum. Fimm manns sem kæmu til greina að verða frambjóðandi repúblíkana miðað við fylgi skv. skoðanakönnunum, Rudy Giuliani, Mike Huckabee, Mitt Romney, John McCain, Fred Thompson og svo er Ron Paul í sjálfu sér ekkert mjög langt undan.
Giuliani virtist vera með fremur örugga forystu fyrir nokkrum mánuðum en það hefur breyst töluvert nýlega. Svo hefur alltaf verið stóra vandamálið hjá honum að hann er langt á eftir í öllu forvali í janúarmánuði og verður að treysta á að Super Tuesday verði honum hagstætt 5. febrúar.
Forval demókrata
Hef alltaf haft gaman af því að fylgjast með bandarískri pólitík síðan ég uppgötvaði þann frábæra sjónvarpsþátt West Wing fyrir nokkrum árum.Í gær voru demókratar og repúblíkanar í Iowa að kjósa um kandídat sinn til forsetakosninga í nóvember á þessu ári. Barack Obama bar sigur úr býtum hjá demókrötum.
Það kemur í sjálfu sér ekki á óvart að Barack Obama hafi unnið. Bæði hann, Edwards og Clinton hafa verið að berjast um fyrsta sætið í fylkinu skv. skoðanakönnunum síðustu vikna. Clinton lenti í þriðja sæti nú, prósentustigi á eftir Edwards.
Það er spurning hvort þetta skipti máli fyrir Clinton sem að öllum líkindum er að fara verða forsetaframbjóðandi demókrata. Ef þessi sigur Obama hafi þau áhrif að kjósendur í New Hampshire ákveði að skipta um skoðun í forvali þar þann 8. janúar og Obama vinni þar líka er spurning hvað gerist. Það myndi að öllum líkindum þýða að hann vinni South Carolina forvalið einnig og þá geta hlutir farið að gerast.
Ef Clinton vinnur hins vegar New Hampshire (er nokkrum prósentum fyrir ofan eins og er skv. skoðanakönnunum) er spurning hvort þetta sé ekki bara búið. Hillary á svo eftir að vinna Michigan þann 15. janúar og Nevada þann 19. janúar og ef til vill verður sú þróun til þess að hún vinni svo South Carolina einnig (26. janúar). Þá tekur við Florida sem vegur þyngst af öllum þessum forvölum þar sem Clinton mun vinna öruggan sigur.
Þá fer hún inn í "Super Tuesday" þann 5. febrúar með mikið forskot, en þá fara fram mjög mörg forvöl á einum degi.


