Ph.D Comics

Síðustu ummæli

Þórey (Framtíðarsýn í bo…): ”...og hugsaðu þér hvað það væri nú gaman, ef við b…
ester (gæsir,íkornar,kan…): Já, til dæmis
Ragnar (gæsir,íkornar,kan…): Þú meinar að ef ég uppgötva að ég sökka sem vísinda…
ester (gæsir,íkornar,kan…): FLott, þá geturðu veitt þér til matar ef illa fer.
Ragnar (Greinar): Ég hef oft velt því fyrir mér að fara þessa leið Óm…
Ómar (Greinar): Já, ef þessum niðurstöðum þínum er svo hafnað er þa…
Mamma (málstofa á morgun…): Hvernig er þetta með þig ertu bara hættur að blogga…
Salóme (sestur á skólabek…): Shit….ég þarf greinilega að passa mig betur í framt…
Ragnar (sestur á skólabek…): Þetta er vandamál sem hefur ágerst.
Ester (sestur á skólabek…): Ég held að Salóme sé að reyna við þig.

Hvarf - félag efna- og lífefnafræðinema
Efnafræðistofa
Efnafræðiskor
Vísindavefurinn

Vefir

Fljúgandi spagettískrímslið - Paródía um Intelligent Design-ruglið sem er að tröllríða Bandaríkjunum
Vantrú - Íslenskt félag sem berst gegn boðun hindurvitna
TalkOrigins - Vefur um sköpunar/þróunardeiluna
James Randi - James Randi veitir 1 milljón dollara til þess sem sýnir fram á yfirnáttúrulega hæfileika
Maclantic - Íslenskur fréttavefur um Macintosh
Wikipedia - Fer að verða einn mikilvægasti vefur netsins
PhysOrg - Vísindafréttir
SlashDot - News for nerds - stuff that matter
Macs in Chemistry
MacResearch
Apple - Science

Hitt & þetta

Hvers vegna Widescreen ?

Fyndið

Ritun vísindagreinar
Rules of the lab
Science jokes
Orðalag vísindagreina
Lotukerfið & teiknimyndasögur
Lotukerfið & Tom Lehrer
The 30-Second Bunnies Theatre

Leita

Gamlar færslur

01. júlí - 31 júlí 2006
01. ágú - 31 ágú 2006
01. sep - 30 sep 2006
01. okt - 31 okt 2006
01. nóv - 30 nóv 2006
01. des - 31 des 2006
01. jan - 31 jan 2007
01. feb - 28 feb 2007
01. mar - 31 mar 2007
01. apr - 30 apr 2007
01. maí - 31 maí 2007
01. júlí - 31 júlí 2007
01. ágú - 31 ágú 2007
01. okt - 31 okt 2007
01. nóv - 30 nóv 2007
01. des - 31 des 2007
01. jan - 31 jan 2008
01. feb - 28 feb 2008
01. mar - 31 mar 2008
01. apr - 30 apr 2008
01. maí - 31 maí 2008
01. júní - 30 júní 2008
01. júlí - 31 júlí 2008
01. nóv - 30 nóv 2008
01. des - 31 des 2008
01. jan - 31 jan 2009
01. feb - 28 feb 2009
01. mar - 31 mar 2009
01. apr - 30 apr 2009

Um mig

Ragnar Björnsson er doktorsnemi í kennilegri ólífrænni lífefnafræði við St Andrews háskóla í Skotlandi. Hann útskrifaðist með B.Sc. gráðu í lífefnafræði vorið 2006 og M.Sc. gráðu í ólífrænni efnafræði haustið 2008 frá Háskóla Íslands.

Efnafræðiblogg & fréttasíður

Everyday Scientist
The Chem Blog
Carbon-based Curiosities
Chemistry World
Chembark
Molecule of the day
Khymos - molecular gastronomy
Culture of Chemistry
She blinded me with science
In the Pipeline
Tenderblog

Efnafræði

Tæki & tól efnasmiðsins
Lífrænir leysar - tafla
NMR-hliðrunargildi leysa
Mólmassareiknivél
Isotope pattern reiknivél
Einingabreytar
Þrýstingseiningabreytir
Orkueiningabreytir
Spektroskópíutól
Eðlisefnafræðihandbók
Lotukerfið
A-gildi
Rafneikvæðnigildi
Nomograph
Fastar efnafræðinnar
SI-einingakerfið
pKa töflur
Efnafræðiskammstafanir
Gagnagrunnar
Efnaleit - Chemfinder
Efnaleit - NIST
Efnaleit - Emolecules
Efnaleit - SDBS
Kristalbyggingar
Punktgrúppur
Merck Chemical Databases
PSIgate
ISI Web of Science
Hvar.is
WebReactions
Synthetic Pages
NIST Atom. Spec. Database

Fræðslusíður - efnafræði

Inngangur að NMR
The Basics of NMR
NMR gátur I
NMR gátur II
NMR orðabók
Organomet. HyperTextBook
2. lögmál varmafræðinnar
Hyperphysics
Allt um labbið
Glervara og glerblástur
Organic Chemistry Info
Kristallaræktun
Þurrkun leysa
Spectroscopy Now

Enn um kirkju og skóla

Maður varð nú bara reiður við að lesa ýmislegt í blöðunum í dag. Hvernig er hægt að misskilja viðhorf þeirra sem vilja ekki sjá trúboð í skólum á þennan hátt ? Hafa menn ekki kynnt sér málin eða er vísvitandi verið að snúa útúr og búa til ?
Kolbrún Bergþórsdóttir virðist halda í alvörunni að þetta snúist um að trúleysingjar og aðrir vilji banna kærleiksumfjöllun í skólum og heldur að kristinn kærleikur sé hinn eini sanni kærleikur.
Hvers vegna er foreldrum ekki lengur treyst til að kenna börnum sínum um kærleik ? Nú eða leik- og grunnskólakennurum ? Hvers vegna hefur kirkjan einkarétt á kærleiksboðun ?

Leiðari 24 stunda var uppfullur af fordómum og rangfærslum.
Menntamálaráðherra, þrátt fyrir ágætis breytingu á frumvarpi sem hún stendur fyrir, virðist einnig misskilja málflutning Siðmenntar og annarra um hvernig trúboð eigi ekki heima í skólum.

Heldur fólk virkilega að málflutningur þeirra sem vilja trúboð út úr skólum snúist um að banna umfjöllun um jólin, jólaföndur, jólafrídaga og litlu jólin ?
Jólin eru miklu eldri hefð á Íslandi en svo að hún tengist kristni beint. Trúleysingjar halda held ég allir upp á jólin enda snýst hátíðin um vetrarsólstöður, jólapakka, grenitré og piparkökur, góðan mat, íslenska jólasveina o.s.frv.
Nú er það sjálfsagt misjafnt eftir skólum en mig grunar nú samt að flest því sem tengist jólunum í grunnskólum tengist kristninni bara ekki neitt, kannski eitt og eitt jólalag.

Mæli með nokkrum bloggum og blaðagreinum í dag:
Hefur Þjóðkirkjan einkarétt á kærleika ?
Hefðarvald Þjóðkirkjunnar
Leikskólatrúboð er ekkert val
Kúgun fjölmenningarsamfélagsins

Aðskilnaður kirkju og skóla

Það er mikil umræða í gangi um þessar mundir varðandi aðkomu ríkiskirkjunnar í leikskóla og grunnskóla. Enda virðist sem að fólk sé farið að átta sig á þeirri tímaskekkju (eða bara skekkju) um boðun trúar í barnaskólum.

Umræða hefur verið síðustu mánuði um hina s.k. Vinaleið í Garðabæ þar sem Þjóðkirkjunni tókst að koma inn fulltrúa sínum í nokkra grunnskóla með það fyrir augum að stunda þar "kristilega sálgæslu". Hætt hefur nú verið við Vinaleiðina í öllum þessum grunnskólum m.a. vegna kvartana foreldra og kvörtun Persónuverndar.

Þá hafa 3 af 5 leikskólum í Seljahverfi útilokað heimsóknir presta í skólana í kjölfar kvartana foreldra og einnig í ljósi skýrslu starfshóps Leikskóla- og Menntasviðs Reykjavíkur um samstarf leik- og grunnskóla við trúar- og lífsskoðunarhópa.

Menntamálaráðuneytið hefur gefið út tilskipun um að fermingarfræðsla skuli ekki fara fram á skólatíma.

Þá er kristilegt siðgæði á leiðinni út úr aðalnámskrá grunnskólanna skv. frumvarpi menntamálaráðherra.


Mikið gaman, mikið fjör...

Trúfélagsúrskráning

Það var um þetta leyti fyrir ári síðan að ég uppgötvaði skráningu mína í ríkiskirkju allra landsmanna þrátt fyrir að ég vilji ekkert með það bákn að gera og hafi aldrei skráð mig í hana. Var þá staddur úti í Kanada þegar ég sendi litla fyrirspurn á Þjóðskrá. Skráði mig þá úr ríkiskirkjunni með faxi.

Þann 1. des. er farið yfir skráningar landsmanna í trúfélög og sóknargjöld úthlutuð skv. þeim.
Ég hvet alla til þess að vera með það á hreinu í hvaða trúfélag það er skráð og hvort það vilji yfirhöfuð styrkja það með 10 þús. kr á ári.

Sóknargjöld þeirra sem ekki eru skráðir í trúfélag rennur í Háskólasjóð sem ég persónulega kýs að styrkja fremur en annað.

Eyðublað til að breyta trúfélagsskráningu má nálgast hér og hægt er að senda það með faxi á S: 569 2949 eða skila á skrifstofu Þjóðskrár Borgartúni 24.

jamm og jæja

Jæja, kominn tími til að blogga á ný. Hef verið upptekinn við veggspjaldsgerð fyrir ráðstefnu Efnafræðifélags Íslands og fyrirlestur um ólífræna lífefnafræði sem ég hélt á málstofu efnafræðiskorar fyrir stuttu.
Veggspjaldið varð til og ráðstefna Efnafræðifélags Íslands vel lukkuð.
Dagar og nætur síðustu viku fóru svo í undirbúning á fyrirlestri sem ég hélt síðasta föstudag sem fjallaði um það svið efnafræðinnar þar sem ólífræn efnafræði og lífefnafræði tvinnast saman, eða s.k. bioinorganic efnafræði. Glærushowið ef einhver hefur áhuga: Sjá hér

Fór svo á mjög áhugaverðan málfund fyrir stuttu sem félagið Res Extensa stóð fyrir. Þar var Svanur Sigurbjörnsson læknir með erindið "Vísindi og nýöld - bólusetningar eða blómadropar". Fróðlegt erindi um bólusetningar og mikilvægi þeirra og reynt að kveða niður mýtur um hættu og tilgangsleysi þeirra.
Maðurinn var varla byrjaður að tala þegar byrjað var að grípa frammí fyrir honum og hann spurður um hvort hann væri með heimildir fyrir hinum og þessum fullyrðingum, það var engu líkara en að hann hefði verið að halda því fram að tunglið væri úr osti !
Að loknum fyrirlestri komu svo áhugaverðar umræður sem voru aðallega áhugaverðar að því leyti að komast að því hvaða ranghugmyndir eru til meðal fólks um bólusetningar. Í salnum voru reyndar margir kuklarar samankomnir með margt misgáfulegt að segja.
Glærur úr fyrirlestrinum má finna á heimasíðu Res Extensa: Sjá hér

Grein á Vantrú um hveitigras

Mæli með grein dagsins á Vantrú.