Ph.D Comics

Síðustu ummæli

Þórey (Framtíðarsýn í bo…): ”...og hugsaðu þér hvað það væri nú gaman, ef við b…
ester (gæsir,íkornar,kan…): Já, til dæmis
Ragnar (gæsir,íkornar,kan…): Þú meinar að ef ég uppgötva að ég sökka sem vísinda…
ester (gæsir,íkornar,kan…): FLott, þá geturðu veitt þér til matar ef illa fer.
Ragnar (Greinar): Ég hef oft velt því fyrir mér að fara þessa leið Óm…
Ómar (Greinar): Já, ef þessum niðurstöðum þínum er svo hafnað er þa…
Mamma (málstofa á morgun…): Hvernig er þetta með þig ertu bara hættur að blogga…
Salóme (sestur á skólabek…): Shit….ég þarf greinilega að passa mig betur í framt…
Ragnar (sestur á skólabek…): Þetta er vandamál sem hefur ágerst.
Ester (sestur á skólabek…): Ég held að Salóme sé að reyna við þig.

Hvarf - félag efna- og lífefnafræðinema
Efnafræðistofa
Efnafræðiskor
Vísindavefurinn

Vefir

Fljúgandi spagettískrímslið - Paródía um Intelligent Design-ruglið sem er að tröllríða Bandaríkjunum
Vantrú - Íslenskt félag sem berst gegn boðun hindurvitna
TalkOrigins - Vefur um sköpunar/þróunardeiluna
James Randi - James Randi veitir 1 milljón dollara til þess sem sýnir fram á yfirnáttúrulega hæfileika
Maclantic - Íslenskur fréttavefur um Macintosh
Wikipedia - Fer að verða einn mikilvægasti vefur netsins
PhysOrg - Vísindafréttir
SlashDot - News for nerds - stuff that matter
Macs in Chemistry
MacResearch
Apple - Science

Hitt & þetta

Hvers vegna Widescreen ?

Fyndið

Ritun vísindagreinar
Rules of the lab
Science jokes
Orðalag vísindagreina
Lotukerfið & teiknimyndasögur
Lotukerfið & Tom Lehrer
The 30-Second Bunnies Theatre

Leita

Gamlar færslur

01. júlí - 31 júlí 2006
01. ágú - 31 ágú 2006
01. sep - 30 sep 2006
01. okt - 31 okt 2006
01. nóv - 30 nóv 2006
01. des - 31 des 2006
01. jan - 31 jan 2007
01. feb - 28 feb 2007
01. mar - 31 mar 2007
01. apr - 30 apr 2007
01. maí - 31 maí 2007
01. júlí - 31 júlí 2007
01. ágú - 31 ágú 2007
01. okt - 31 okt 2007
01. nóv - 30 nóv 2007
01. des - 31 des 2007
01. jan - 31 jan 2008
01. feb - 28 feb 2008
01. mar - 31 mar 2008
01. apr - 30 apr 2008
01. maí - 31 maí 2008
01. júní - 30 júní 2008
01. júlí - 31 júlí 2008
01. nóv - 30 nóv 2008
01. des - 31 des 2008
01. jan - 31 jan 2009
01. feb - 28 feb 2009
01. mar - 31 mar 2009
01. apr - 30 apr 2009

Um mig

Ragnar Björnsson er doktorsnemi í kennilegri ólífrænni lífefnafræði við St Andrews háskóla í Skotlandi. Hann útskrifaðist með B.Sc. gráðu í lífefnafræði vorið 2006 og M.Sc. gráðu í ólífrænni efnafræði haustið 2008 frá Háskóla Íslands.

Efnafræðiblogg & fréttasíður

Everyday Scientist
The Chem Blog
Carbon-based Curiosities
Chemistry World
Chembark
Molecule of the day
Khymos - molecular gastronomy
Culture of Chemistry
She blinded me with science
In the Pipeline
Tenderblog

Efnafræði

Tæki & tól efnasmiðsins
Lífrænir leysar - tafla
NMR-hliðrunargildi leysa
Mólmassareiknivél
Isotope pattern reiknivél
Einingabreytar
Þrýstingseiningabreytir
Orkueiningabreytir
Spektroskópíutól
Eðlisefnafræðihandbók
Lotukerfið
A-gildi
Rafneikvæðnigildi
Nomograph
Fastar efnafræðinnar
SI-einingakerfið
pKa töflur
Efnafræðiskammstafanir
Gagnagrunnar
Efnaleit - Chemfinder
Efnaleit - NIST
Efnaleit - Emolecules
Efnaleit - SDBS
Kristalbyggingar
Punktgrúppur
Merck Chemical Databases
PSIgate
ISI Web of Science
Hvar.is
WebReactions
Synthetic Pages
NIST Atom. Spec. Database

Fræðslusíður - efnafræði

Inngangur að NMR
The Basics of NMR
NMR gátur I
NMR gátur II
NMR orðabók
Organomet. HyperTextBook
2. lögmál varmafræðinnar
Hyperphysics
Allt um labbið
Glervara og glerblástur
Organic Chemistry Info
Kristallaræktun
Þurrkun leysa
Spectroscopy Now

Mentos og kók - stórhættuleg blanda

...eða þannig...

Powerpoint skjal með hræðsluáróði um Mentos og Coca Cola fer nú sem eldur um sinu í tölvupósti fólks. Fékk ég einn slíkan rétt áðan. Flökkusögur hafa sjaldan áður öðlast jafn mikla útbreiðslu síðan Internetið varð til og það er fjarri því að vera gott. Umrætt Powerpoint-skjal

Skjalið inniheldur upplýsingar um 10 ára strák frá Sao Paulo, Brasilíu sem veiktist og dó skyndilega eftir að maginn hans sprakk eftir að hafa innbyrgt bæði Coca Cola Light og Mentos. Þetta er sett fram á dramatískan hátt à la Powerpoint og svo er sagt frá vísindamanninum Alexander B. Mergenthaler frá efnafræði-institútinu l'Institut USP (France) sem rannsakaði þetta og komst að því að Acesulfame K INS930 þegar það kemst í snertingu við Mentos-efni þá á sér stað stórhættulegt efnahvarf með hið dramatíska nafn Ta9V4 sem veldur gífurlegri gasmyndun og sprengingu.
Þrátt fyrir mikla fjölmiðlaumfjöllun (það efast ég ekki um, alla vega ekki í USA) þá hafa Coca Cola og Mentos fyrirtækin ekki viljað tjáð sig um þetta mál.

Fyrir það fyrsta þá er ómögulegt að rekja umræddan atburð til Sao Paulo sem ekki tengist umræddu Powerpoint skjali.

Vísindamaður að nafni Alexander B. Mergenthaler er ekki til nema mögulega einn í Japan sem fæst við arkitektúr skv. Web of Science.

l'Institut USP (France) finn ég ekkert um en þess má geta að University of Sao Paulo (USP) er til.

Acesulfame K INS930 er sætuefni sem m.a. er notað í sykurlausa gosdrykki. Það hefur E og INS númer 950 skv. Evrópusambandinu, Matvælaeftirlitsstofnun Sameinuðu Þjóðanna og Alþjóða heilbrigðistofnunni. Ef ýta á undir kemófóbíu fólks (órökræna hræðslu við efni) þá er alltaf gott að bæta við nokkrum bókstöfum og tölustöfum til að gera fólki ljóst að hér sé örugglega um ljótt tilbúið kemískt efni sem líklegt er til að valda þér eins miklum skaða og það getur. INSnúmerið er hins vegar af einhverjum orsökum rangt hér, 930 í stað 950.

Efnafræðingar eru sjálfselskupúkar sem skíra efnahvörfin sín eftir sér sjálfum og myndu ekki skíra efnahvarf með því ljóta og merkingarlausa nafni Ta9V4 . Tetravanadín-nonatantalum ??

Efnafræðin er svo frekar léleg. Effektinn við að setja mentos í Coca Cola Light (sjá t.d. hér) er sá sami og að setja í Coca Cola (sem inniheldur ekki asesúlfam K) og því er þetta ótengt asesúlfam K. Í rauninni er ekki um að ræða efnahvarf heldur frekar eðlisfræðilegan effekt sem hefur að gera með hrjúf yfirborð og losun uppleystra gastegunda úr vökvum. Vísindavefurinn er með góða úttekt á þessu. Sjá hér

Maginn er ekki að fara springa. Nóg af matarleifum og slíku er í maganum sem myndi hafa svipuð áhrif og mentos varðandi losun gastegunda og þetta tekur maður meira að segja eftir þegar maður drekkur gos. Sögur eins og þessar um springandi maga hafa verið til í mörg mörg ár og hafa ávalt reynst vera flökkusögur sem ekkert er til í. Ég gæti þó giskað á að þröngva mikið af mentosi og gosi ofan í sig í einu sé ekki mjög þægilegt.

Eru Bandaríkjamenn trúaðri en páfinn í Róm ?

Merkilegt.

Sjá hér

The Secret

Er þjóðin dottin á hausinn ?

Náttúrulækningar

Vísir.is: Tourette-einkenni hurfu eftir náttúrulækningar
Vísir.is:Landlæknir sáttur við náttúrulækningar

Er ekki í allt í lagi ? Skulum ekki gleyma hvað homeopatía er: spekin við að þynna efni það mikið út að ekkert er eftir af því og græða á því að selja vatn með innbyggðum placebo-áhrifum.
Það er afskaplega sorglegt að landlæknir taki ekki skýrari afstöðu til svo kallaðra náttúrulækninga eins og homeopatíu. Homeopatíulyf eru vissulega skaðlaus (innihalda ekkert) en svo sannarlega er verið að plokka peninga af fólki.

Uppfært: Eftir að hafa horft á Ísland í dag þáttinn þar sem viðtal var við móður barnsins með Tourette einkennin er ég reyndar farinn að efast um að homeopatíulyf hafi komið eitthvað við sögu þótt það komi reyndar fram í Vísis-fréttinni. Mér sýnist eins og manneskjan hafi ákveðið að setja barn sitt á hollt mataræði (sem einkennist reyndar af dálítilli kemófóbíu og ofurtrú á allt sem er lífrænt ræktað en hvað um það) Af hverju hefur enginn sagt mér áður að það að borða hollan mat geri manni gott ? Þetta er stórfrétt !


En fyrst ég byrjaði að tala um homeopatíu þá mæli ég samt eindregið með myndskeiðinu fyrir neðan sem er úr BBC-heimildarþætti sem sýnir á mjög skýran hátt hvurslags bull og vitleysa þetta er sem við erum að tala um og hvílík móðgun við fræðigreinina efnafræði.