...
Er loksins farinn að nálgast það að geta farið að gera eitthvað að viti í mastersverkefninu mínu svokallaða. Loksins gengur eitthvað að að hreinsa myndefnið mitt frá sullinu og þá styttist í að ég geti farið að fikta í afurðinni.Átti hins vegar ekki mína bestu stund um daginn þegar ég varð þess valdur að tæma köfnunarefnisbirgðir Raunvísindastofnunar á einu bretti með því að skrúfa ekki fyrir kútinn almennilega áður en ég fór heim. Um 100 L tæmdust yfir nótt... úbs...
Sit núna og skemmti mér við að fara yfir 10 stykki allt of þykkar vinnubækur nemenda minna í Efnagreiningartækni. Eins leiðinlegt og það var að vinna bókina sjálfur á sínum tíma þá er það eiginlega verra að þurfa fara yfir 10 bækur og leiðrétta.
Trúa því að fjallalækur geri meira gagn en lyf gegn HIV-veirunni
Þessi frétt segir allt sem segja þarf um af hverju ég er trúlaus og myndi aldrei styrkja hjálparstofnun sem byggir m.a. á trúboði í þróunarlöndunum.Sjá frétt á mbl.is


