Komplex - félag framhaldsnema í efna- og lífefnafræði
Nýlega var stofnað félag framhaldsnema í efnafræði og lífefnafræði sem ég kom meðal annars nálægt. Kosið var um nafn félagsins á stofnhófi um daginn og fékk nafnið Komplex flest atkvæði.Er ég varaformaður félagsins eins og er og Pétur Orri lífefnafræðingur formaður.
Félagið mun beita sér varðandi allt það sem viðkemur hagsmunum framhaldsnema og reyna skapa eitthvað félagslíf sem hefur verið ákaflega dapurt lengi.
Vefsíða félagsins lítur svo vonandi dagsins ljós fljótlega.
Jæja...
Jæja, mér hefur næstum tekist að drepa þetta blogg. Það er ekki nógu gott. Ætla kippa þessu í lag.Ligg eins og er heima hundveikur (ég sem er aldrei veikur) af einhverju ógeði sem er búið að vera ganga síðustu vikur. Sjálfsagt búinn að smita alla nemendur mína í efnagreiningartækni þar sem ég var of þrjóskur til að viðurkenna veikindi mín á mánudag, þó ég hafi talað eins og Andrés Önd allan daginn.
Er einnig að drepast í vinstri kjálkanum mínum af óljósum ástæðum og nota því hægri kjálkann til mataráts í staðinn.
Alla vega, ætla að fara lífga upp á þessa síðu aftur á næstu dögum.
Hér er svo lífrænt tónlistarmyndband (ekki það sem þú heldur). Sjá hér (mjög töff)


