undarleg vísindaferð
Fór í einhverja undarlegustu vísindaferð sem ég hef farið í, á föstudaginn.Ég rankaði stundum við mér í miðjum fyrirlestri og furðaði mig á því hvar ég væri staddur eiginlega.
Þetta var vísindaferð Hvarfs í Landsvirkjun. Vísindaferðir eru yfirleitt hugsaðar sem kynningar á fyrirtækjum og stofnunum fyrir efna-, lífefna- og efnaverkfræðinema og Landsvirkjun að mörgu leyti áhugavert fyrirtæki þannig að ég átti von á fróðlegri vísindaferð.
En í staðinn labbaði maður inn í stórfurðulegan áróðurspistil upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar um Kárahnjúkavirkjun og álver. Maðurinn kom víða við sögu en honum tókst á stuttum tíma að koma að koldíoxíðmengun, Ómari Ragnarssyni, gróðurhúsáhrifum, umferðarslysum, Kyoto-bókuninni, Andra Snæ, stíflum, álverum, Ólafi Teiti Guðnasyni, borholum og lóni .
Frekar undarlegt allt saman.
vinna vinna vinna
Maður er kominn á fullt.Er búinn að eima núna hátt í 11 lítra af brúnu ógeði og eftir stendur að fíneima það þar til ég felli að lokum út hvíta kristalla í eins miklu magni og mögulegt er.
Í þessari viku verður einnig fyrsta afleiða trisilacyclohexans smíðuð og þar með er MS verkefnið mitt að byrja að einhverju ráði. Þetta verður gert í samstarfi við nemendasmíð í verklegu í Ólífrænu 4.
Kenndi minn fyrsta tíma í verklegu í Efnagreiningartækni áðan. Hefði mátt ganga betur. 4 hópar í stofunni, allir í efnagreiningartækni í fyrsta skipti, allir að gera mismunandi æfingu og ég að kenna fagið í fyrsta skipti og reyna útskýra hvers vegna Windows efnagreiningarforrit haga sér eins og fífl á tíðum. Gengur vonandi betur næst. Duglegir nemendur samt.
Ja hvur skrambinn. Íslenska landsliðinu í handbolta tókst að bjarga sér út úr stöðunni sem það var búið að koma sér í með ósigri fyrir Úkraínu um daginn. Ég var hundfúll eftir þann leik og var búinn að gefa upp alla von og var meira að segja búinn að gleyma að leikurinn við Frakka væri eftir. Kveikti á sjónvarpinu fyrir tilviljun þegar 10 mínútur voru eftir áðan og voru þá Íslendingar 10 mörkum yfir.
Það eru spennandi tímar í NMR-forritamálum framundan. Það styttist óðum í MestReNova, forritið sem á eftir að umbylta því hvernig maður hugsar um NMR, eða svo segir framleiðandinn.
Forritið mun sameina allt það besta úr Mestrec og iNMR og losa sig við það versta (eða það vona ég). Það verður gefið út fyrir bæði Windows, Mac OS X og Linux. Er búinn að vera prufukeyra alpha-útgáfu forritsins og ég verð að viðurkenna að þetta lofar mjög góðu. Keyrir mjög vel á vélinni minni, rófagreining er leikur einn og rófin líta mjög vel út. Sjá hér
Sex lifrarbólgutilfelli eftir neyslu á Herbalife
"Sex einstaklingar hafa verið lagðir inn á sjúkrahús á Íslandi með lifrarbólgu eftir neyslu á Herbalife. Þetta kom fram í fréttum Sjónvarpsins í kvöld. Þar var haft eftir læknum að væntanlega væri ástæðan fyrir veikindunum tengd eitruðum jurtum í Herbalife. Svipuð tilvik hafa einnig komið upp í Bandaríkjunum." Heimild: mbl.isBíddu, hva ba ?
Eitraðar jurtir í Herbalife ? Er ekki allt sem kemur úr jurtaríkinu svo hollt og gott og miklu betra en þessi nýmóðins læknifræðivitleysa ?
Æsingurinn yfir aspartam
Aspartam er eitt algengasta sætuefnið í matvælum í dag og sérstaklega algengt í sykurlausum gosdrykkjum. Miðað við hvað þetta er algengt í matvælum gerir maður ráð fyrir að efnið hafi verið rannsakað vel og að það sé manni ekki skaðlegt.Það er hins vegar ekki myndin sem maður fær ef maður byrjar að lesa sig til um aspartam á netinu því netið virðist almennt sammála um skaðsemi þessa efnis. Einföld googleleit gefur manni upp 10 leitarniðurstöður á fyrstu síðu og 80 % þeirra eru vefsíður sem tala um skaðsemi aspartams.
Hvernig stendur á þessu ?
Back to the basics, efnafræði:
Aspartam er efni sem brotnar niður í tvær amínósýrur: aspartic sýru og phenylalanine. Bæði efni eru uppistaðan í próteinum en að vissu leyti má líkja aspartami við lítið prótein eða dípeptíð.
Phenylalanine er meira að segja svo kölluð lífsnauðsynleg amínósýra, þ.e. mannslíkaminn getur ekki myndað efnið sjálfur og verður því að fá það úr fæðunni. Ef við myndum ekki fá lífsnauðsynlegar amínósýrur úr fæðunni myndi líkaminn ekki geta myndað mikilvæg prótein sem gæti leitt til alvarlegra sjúkdóma.
Aspartam brotnar reyndar einnig niður í metanól (tréspíri) sem er vissulega skaðlegt efni en magnið sem myndast er hverfandi miðað við eðlilega neyslu, efnaskiptaferlar mannslíkamans mynda einnig metanól í einhverju magni og ýmsar vörur eins og ávaxtasafi innihalda mun meira metanól en t.d. aspartaminnihaldandi gosdrykkir.
Það er ekkert sem bendir til skaðlegra áhrifa aspartams. Undantekning eru þeir einstaklingar með erfðasjúkdóminn PKU. Þá einstaklinga skortir ensímið phenylalanine hydroxylasa sem breytir phenylalaníni í týrósín (önnur amínósýra). Þetta hefur þau áhrif að efnaskiptaferlar einstaklinga með PKU eru verulega brenglaðir og þeir þurfa að forðast phenylalanínríkan mat alla sína ævi og þar með aspartaminnihaldandi matvæli.
Aspartam er eitthvert mest rannsakaða efni sem notað er í matvælum í dag.
Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur látið rannsaka efnið reglulega í mörg ár og vísar til 100 eiturefnafræðilegra og klínískra rannsókna á efninu.
Einnig má benda á sambærilegar ályktanir matvælaeftirlitsstofnana 99 ríkja heims, þar á meðal Bretlands, Frakklands og Kanada sem nýlega birtu nýjar álitsgerðir.
Evrópska vísindastofnunin um matvæli fór nýlega yfir niðurstöður 500 greina og ráðstefnuerinda um aspartam. Þetta hafði áður verið gert árið 1984, 1988 og 1997. Í öll skiptin hefur niðurstaða nefndar verið að skaðsemi aspartams sé engin.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin er á sama máli.
Heimildir:
FDA upplýsingavefur
EFSA skýrsla
SCF skýrsla
Upplýsingavefur heilbrigðiseftirlits Kanada
Nýtt ár
Ég er ekki hættur að skrifa, ég er að koma mér í gírinn á ný.Er byrjaður að vinna á fullu, dagurinn minn gengur helst nú út á að eima drullumall sem ég eyddi 3 mánuðum síðasta sumars í að að búa til, auk þess að veita vinnufélögum mínum andlegan stuðning við að setja saman IKEA-hillur á rannsóknarstofunni. Svo tek ég sennilega einn kúrs á þessari önn sem að öllum líkindum verður sá síðasti, auk þess sem ég mun kenna einhverjum lyfjafræðinemum efnagreiningartækni. Þannig mun þessi næsta önn mín sem sagt líta út. Mætti reyndar í einn tíma í dag í hinu nýja námskeiði Líf í alheimi sem er námskeið í astrobiology. Áhugavert námskeið, gæti verið að ég mæti í nokkra tíma til gamans.
Fyrir efnafræðiþyrsta lesendur mæli ég með að velta fyrir sér tengslum Ramadan við efnaskipti arseniks. Sjá hér


