Kominn heim
Lenti á Íslandi um 7-leytið að morgni 21. des.Heimförin samanstóð af 27 klst. ferðalagi með rútum, biðtíma og flugi. Þetta geri ég aldrei aftur.
Er með hrikalegt jetlag vegna svefnleysis, tímamismunar og ýmislegs annars og er enn ekki kominn í eðlilegt horf en ég var andvaka í alla síðustu nótt.
Óður til lífrænna leysa
Dylan Stiles elskar lífrænu leysana sína.Og hver gerir það ekki ?
Brot úr grein:
"I’ve come to be intimately familiar with many of these liquids. Without peeking at the chart next to my desk, I can quote the boiling point of 1,4-dioxane and a half dozen other ethers to within a degree. This is, of course, a great conversation starter at parties."
Sjá hér
Heimför
Jæja Kanadadvölinni er bráðum að ljúka. Ritgerð var skilað áðan, ísskápurinn er að þiðna og draslinu mínu hefur verið komið í töskur. Ég er farinn að sjá eftir öllum þessum bókakaupum sem ég hef gert hér en ég vona að ég verði ekki nappaður með yfirvigt.Heimförin verður áhugaverð. Við leggjum á stað um hálf 3 um nótt frá Ottawa til Montreal. Bíðum í nokkra klukkutíma á rútustöðinni í Montreal þar til við tökum rútu frá Montreal til Boston sem er 11 tíma rútuferð með viðkomu á landamærastöðinni þar sem vinir okkar landamæraverðirnir eiga ábyggilega eftir að vilja tala við okkur aftur.
Komum okkur svo á flugvöllinn í Boston, bíðum þar í nokkra klukkutíma og tökum svo flug um kl. hálf níu um kvöld til Íslands. Lendum að staðartíma um 7 leytið að morgni í Keflavík.
Þetta mun verða gríðarlegt fjör.
brr....
Ef einhver spyr þá var banamein mitt gólfkuldi...ég er að deyja...Vísindi og trúarbrögð - Beyond Belief 2006
Fann vefsíðu sem inniheldur 15 klst. af myndböndum af fyrirlestrum og umræðum frá Beyond Belief ráðstefnunni sem fór fram í nóvember síðast liðinn. Byrjaði að horfa á fyrsta myndbandið og þetta reyndist vera alger gullnáma og ágæt pása (truflun) frá próflestri.Ráðstefnan fjallaði um vísindi og trúarbrögð og hvernig og hvort þessi tvö svið geti farið saman á einn eða annan hátt.
Fyrirlesarar voru m.a. vísindamenn og snillingar á við Richard Dawkins, Michael Shermer, Stephen Weinberg, Sam Harris og margir fleiri. Mörg mjög góð erindi og umræðurnar enn áhugaverðari. Sjá hér
í vísindum er þetta helst...
Á meðan maður er að deyja úr leiðindum yfir ritgerðarvinnu og próflestri finnst manni eins og allir aðrir í heiminum eru að gera miklu merkilegri og skemmtilegri hluti.Kannski er það bara rétt. Margt spennandi búið að gerast í vísindaheiminum upp á síðkastið.
Vísindamenn hjá NASA hafa fundið ummerki um fljótandi vatn á yfirborði Mars. Þetta gefur mönnum von um að kannski megi finna þar líf einhvern tímann (örverur þá, ekki græna kalla) en vatn er undirstaða alls lífs eins og við þekkjum það. Sjá hér
Kristalbygging mikilvægs próteins í inflúensu A veirum (t.d. fuglaflensuveiran H5N1) hefur verið ákvörðuð. Þetta býður upp á möguleika vísindamanna til að hanna sameindir (lyf) sem gæti verkað á "hvarfstöð" próteinsins og þar með stöðvað virkni þess en umrætt prótein gegnir hlutverki í afritun RNA í veirunni og þar með fjölgun veirunnar.Sjá hér
Piyare Jain hlýtur að líða vel. Árið 1974 spáði hann fyrir um tilvist axion-agnarinnar sem átti að vera lítil hlutlaus massalítil óstöðug ögn. Fáir lásu greinina hans en nokkrum árum seinna komust aðrir eðlisfræðingar að nokkurn veginn sömu niðurstöðu og leit hófst að ögninni. Á tíunda áratugnum var leit hins vegar hætt og ögnin talin ekki vera til lengur. Á þessu ári fann Prof. Jain hins vegar ögnina sína með því að nota mælitækni sem enginn notar lengur. Sjá hér
Hvaða þýðingu hefur þetta, kann einhver að spyrja ? Ekki spyrja mig, ég er efnafræðingur. Fyrir mér er algert guðlast að pæla í hlutum sem eru minni en rafeindir og róteindir. En þetta er óneitanlega töff.
Sextengt vetni ? Vetnisatóm að mynda sex tengi með sinni einu litlu rafeind. Ég á ekki orð... Sjá hér
kuldi, engar piparkökur og próf
Kanada er nú orðið mjög kalt, þetta gerðist bara allt í einu en veðrið hefur verið mjög sveiflukennt upp á síðkastið. Nú virðist hins vegar sem tími frosts og kulda sé runninn upp. Það var bara virkilega óþægilegt fyrir hendurnar að bera matarpoka heim úr búðinni áðan (já ég á vettlinga en ég kaus að vera ekki í þeim).Töluvert verra mál er hins vegar að hverfisbúðin mín selur ekki sænskar piparkökur.
Hvernig á ég að lifa próftíð af og meirihluta desembermánaðar án þess að eiga sænskar piparkökur ? Ég bara spyr...
Líf mitt er fremur einfalt í sniðum um þessar mundir, ég borða, læri og sef. Og heng á internetinu. Og drekk bjór.
Eftir standa tvö heimapróf í kjarnefnafræði, skriflegt próf í assymmetrískri hvötun og ritgerð í kjarnefnafræði áður en maður snýr heim á leið til landsins með dýra bjórinn (og er jafnvel að fara verða enn dýrari ef marka má nýjustu fréttir).
1. des
Kanadamenn kunna þetta. Í dag er 1. desember og í dag er búið að skreyta skólann heldur betur án þess að nokkuð hafi sést í gær sem minnir mann á jólin. Það var meira að segja snjór í dag. Töluvert skárra en heima á klaka þar sem byrjað er að skreyta í upphafi nóvember liggur við.Svona gerir maður ekki
Það er svo fyndið hvað sumt fólk heldur að það sé sjálfsagt mál að svara í símanum í tölvuveri bókasafnsins þar sem alger þögn er almennt og byrja svo að tala með venjulegum málrómi. Fólk í kringum hrekkur yfirleitt í kút við þetta en símtalarinn virðist ekkert átta sig.Og hvað er málið með að klína tyggigúmmí undir borðplötur? þetta er svo rangt...


