Ph.D Comics

Síðustu ummæli

Þórey (Framtíðarsýn í bo…): ”...og hugsaðu þér hvað það væri nú gaman, ef við b…
ester (gæsir,íkornar,kan…): Já, til dæmis
Ragnar (gæsir,íkornar,kan…): Þú meinar að ef ég uppgötva að ég sökka sem vísinda…
ester (gæsir,íkornar,kan…): FLott, þá geturðu veitt þér til matar ef illa fer.
Ragnar (Greinar): Ég hef oft velt því fyrir mér að fara þessa leið Óm…
Ómar (Greinar): Já, ef þessum niðurstöðum þínum er svo hafnað er þa…
Mamma (málstofa á morgun…): Hvernig er þetta með þig ertu bara hættur að blogga…
Salóme (sestur á skólabek…): Shit….ég þarf greinilega að passa mig betur í framt…
Ragnar (sestur á skólabek…): Þetta er vandamál sem hefur ágerst.
Ester (sestur á skólabek…): Ég held að Salóme sé að reyna við þig.

Hvarf - félag efna- og lífefnafræðinema
Efnafræðistofa
Efnafræðiskor
Vísindavefurinn

Vefir

Fljúgandi spagettískrímslið - Paródía um Intelligent Design-ruglið sem er að tröllríða Bandaríkjunum
Vantrú - Íslenskt félag sem berst gegn boðun hindurvitna
TalkOrigins - Vefur um sköpunar/þróunardeiluna
James Randi - James Randi veitir 1 milljón dollara til þess sem sýnir fram á yfirnáttúrulega hæfileika
Maclantic - Íslenskur fréttavefur um Macintosh
Wikipedia - Fer að verða einn mikilvægasti vefur netsins
PhysOrg - Vísindafréttir
SlashDot - News for nerds - stuff that matter
Macs in Chemistry
MacResearch
Apple - Science

Hitt & þetta

Hvers vegna Widescreen ?

Fyndið

Ritun vísindagreinar
Rules of the lab
Science jokes
Orðalag vísindagreina
Lotukerfið & teiknimyndasögur
Lotukerfið & Tom Lehrer
The 30-Second Bunnies Theatre

Leita

Gamlar færslur

01. júlí - 31 júlí 2006
01. ágú - 31 ágú 2006
01. sep - 30 sep 2006
01. okt - 31 okt 2006
01. nóv - 30 nóv 2006
01. des - 31 des 2006
01. jan - 31 jan 2007
01. feb - 28 feb 2007
01. mar - 31 mar 2007
01. apr - 30 apr 2007
01. maí - 31 maí 2007
01. júlí - 31 júlí 2007
01. ágú - 31 ágú 2007
01. okt - 31 okt 2007
01. nóv - 30 nóv 2007
01. des - 31 des 2007
01. jan - 31 jan 2008
01. feb - 28 feb 2008
01. mar - 31 mar 2008
01. apr - 30 apr 2008
01. maí - 31 maí 2008
01. júní - 30 júní 2008
01. júlí - 31 júlí 2008
01. nóv - 30 nóv 2008
01. des - 31 des 2008
01. jan - 31 jan 2009
01. feb - 28 feb 2009
01. mar - 31 mar 2009
01. apr - 30 apr 2009

Um mig

Ragnar Björnsson er doktorsnemi í kennilegri ólífrænni lífefnafræði við St Andrews háskóla í Skotlandi. Hann útskrifaðist með B.Sc. gráðu í lífefnafræði vorið 2006 og M.Sc. gráðu í ólífrænni efnafræði haustið 2008 frá Háskóla Íslands.

Efnafræðiblogg & fréttasíður

Everyday Scientist
The Chem Blog
Carbon-based Curiosities
Chemistry World
Chembark
Molecule of the day
Khymos - molecular gastronomy
Culture of Chemistry
She blinded me with science
In the Pipeline
Tenderblog

Efnafræði

Tæki & tól efnasmiðsins
Lífrænir leysar - tafla
NMR-hliðrunargildi leysa
Mólmassareiknivél
Isotope pattern reiknivél
Einingabreytar
Þrýstingseiningabreytir
Orkueiningabreytir
Spektroskópíutól
Eðlisefnafræðihandbók
Lotukerfið
A-gildi
Rafneikvæðnigildi
Nomograph
Fastar efnafræðinnar
SI-einingakerfið
pKa töflur
Efnafræðiskammstafanir
Gagnagrunnar
Efnaleit - Chemfinder
Efnaleit - NIST
Efnaleit - Emolecules
Efnaleit - SDBS
Kristalbyggingar
Punktgrúppur
Merck Chemical Databases
PSIgate
ISI Web of Science
Hvar.is
WebReactions
Synthetic Pages
NIST Atom. Spec. Database

Fræðslusíður - efnafræði

Inngangur að NMR
The Basics of NMR
NMR gátur I
NMR gátur II
NMR orðabók
Organomet. HyperTextBook
2. lögmál varmafræðinnar
Hyperphysics
Allt um labbið
Glervara og glerblástur
Organic Chemistry Info
Kristallaræktun
Þurrkun leysa
Spectroscopy Now

Alkalímálmar

Alkalímálmar eru í fyrsta flokki lotukerfisins, vinstra megin lóðrétt. Það einkennir þá að vera pínu óstöðugir, sérstaklega í tengslum við vatn. Um er að ræða lithíum, natríum, rúbidíum, cesíum og francíum. Það sem gerist er að málmarnir hvarfast við vatn, mynda málmhýdroxíð, MOH og vetnisgas H2(g). Vegna mikillar varmamyndunar kviknar í vetnisgasinu og búmm...

Hérna er skemmtilegt myndskeið úr Brainiac þættinum sem sýnir hvernig alkalímálmar haga sér. Sjá hér
Uppfært: Stjórnendur þáttarins virðast hafa verið það lélegir að þeir kunnu ekki að búa til góða sprengingu án þess að bæta við auka dýnamíti og fölsuðu því þáttinn sinn.
Hér má sjá önnur myndskeið sem sýna alla vega hvernig alkalimálmar haga sér og hef enga ástæðu til að halda að þetta sé falsað. Ég þyrfti náttúrulega að gera tilraunirnar sjálfur bara við tækifæri og taka upp á vídeó.
Natríum , Lithíum , Kalíum , Rúbidíum og cesíum , Cesíum

Mig hefur alltaf langað til að gera smá tilraun heima, og það er að fleygja stórum natríumbút í Reykjavíkurtjörn og fylgjast með en ég mér sýnist cesíumbútur yrði meira spennandi. Francíum er því miður geislavirkt.

Ég er að sjálfsögðu að grínast, en ég mæli með myndskeiðunum.

Kvef

Fréttablaðið birti í gær 26. október smá grein (Sjá hér) sem fjallaði um hvað hægt sé að gera við kvefi nú þegar vetur fer að skella á. Þess má reyndar geta að áhrif kulda á kvef er að mestu mýta. Kvef er vegna veirusýkingar og þó kvef komi vissulega yfirleitt fyrir um vetur þá þarf ekki að vera beint orsakasamhengi þar á milli.
Ég hnerra t.d. ekki eins og vitleysingur á sumrin vegna þess að hlýtt er þá í veðri heldur vegna frjókorna, en plönturnar dreifa frjókornum sínum um vor og sumar.

En hverjir voru viðmælendur Fréttablaðsins um hvað sé hægt að gera við kvefi ? :
Kona sem rekur heilsubúð, grasalæknir frá Jurtaapótekinu og að lokum lyfjafræðingur.
Heilsubúðarkonan og grasalæknir mældu með töframixtúrum úr búðum sínum sem eru gerðar úr ýmis konar jurtum og "þrælvirka". Maður spyr sig af hverju þær eru ekki komnar með einkaleyfi á þessum töfrablöndum og farnar að selja út um allan heim. Allur heimurinn verður jú fyrir kvefi.
Lyfjafræðingurinn sagði að ekkert væri lyfjafræðilega sannað sem virkaði gegn kvefi.

Ég hefði alla vega frekar viljað sjá háls-,nef- og eyrnalækni, veirufræðing og lyfjafræðing sem viðmælendur.
Af hverju gera fjölmiðlar þetta ? Af hverju má ekki hafa smá gagnrýna umfjöllun um það sem þetta "heilsufólk" er að bjóða upp á. Við gerum kröfur til lyfjafyrirtækja um að lyfin sem þau búa til hafi gengið í gegnum strangar prófanir og eftirlit en jurtaapótek geta selt hvað sem er án nægilega góðs rökstuðnings eða vísana í vísindalegar prófanir á vörunum.
Ég sé ekki fyrir mér Fréttablaðið gefa ímynduðum Jóa amatörefnafræðingi sem býr til krabbameinslyf í bílskúrnum mikla umfjöllun en ættum við að vantreysta honum eitthvað meira en jurtalæknum ?
Ókei, vissulega segja jurtalæknar að fjöldi fólks hafi prófað vörurnar og að þær virðast skila árangri en getum við treyst slíkum "rannsóknum" ? Það finnst mér ekki, ég vil sjá alvöru tvöfalt blindpróf á góðu úrtaki fólks áður en ég borga fúlgu fjár fyrir eitthvað sem ég gæti mögulega sett saman í kryddskápnum heima.

Svona lagað fer verulega í taugarnar á mér og það mun koma meiri umfjöllun á þessum vef um svona heilsukukl.

Vantrú er með góða umfjöllun um þessa grein. Sjá hér

Própansápukúlur

Eftirfarandi myndskeið á Youtube sýnir mjög skemmtilega efnafræðitilraun sem byggir á því að mynda própaninnihaldandi sápukúlur sem hægt er svo að kveikja í.
Myndbandið er mjög töff en brýtur líka sennilega allar mögulegar öryggisreglur sem hægt er að finna uppi á vegg á tilraunastofu í efnafræði.

Sjá hér

Skunkabragð af bjór ?

Jess, mér tókst að tvinna saman bjór og efnafræði í einu og sömu færsluna.

Þekkt vandamál við geymslu bjórs er að ljós getur eyðilagt hann þannig að bjórinn verði vondur á bragðið. Ekki hefur verið fullkomlega ljóst hvað veldur þessu fyrr en nú.
Danskir og belgískir efnafræðingar hafa með litrófsgreiningum rannsakað málið. Ríbóflavín (B2-vítamín) gleypir í sig ljóseindir venjulegs ljóss og hvarfast svo við brennisteinsinnihaldandi amínósýrur próteina. Þannig myndast brennisteinsstakeindir sem hvarfast við isohumulone stakeindir (sem koma úr humalnum og hafa brotnað niður vegna ljóss einnig) og mynda að lokum þekkt illalyktandi þíól, 3-methylbut-2-enylþíól sem er mjög vont á bragðið einnig. Þetta þíól er einmitt það sem skunkar nota til að fæla lífverur frá.
Þíól eru efni sem innihalda SH hóp (brennisteinn og vetni).

Umrætt vandamál er einmitt ástæða þess að bjór er alltaf seldur í dökku gleri og á alltaf að vera geymdur í myrkri.
En, Ragnar, Corona bjór er alltaf seldur í glæru gleri, er það ekki ?
Það er vissulega rétt, en hvers vegna heldurðu að sítrónu eða limesneið fylgi alltaf Corona-bjór. Það er til að vega upp á móti lyktinni og óbragði sem getur fylgt Coronabjór sem sumir þola verr en aðrir. Coronabjór er einmitt markaðssettur snilldarlega með tilliti til sítrónusneiðarinnar.

Hugsið um þetta næst þegar það er skunkabragð af bjórnum ykkar !

Sjá grein á Chemistry World

Íslenskar hvalveiðar

He he he... allur heimurinn að verða brjálaður út í litla Ísland. Sá meira að segja umfjöllun um hvalveiðar Íslendinga í hverfisblaðinu hérna í Ottawa. Las um daginn um öfgakennda gagnrýni Ástrala.

Nú eru Svíar einnig byrjaðir að mótmæla:
Mbl: Sænsk stjórnvöld gagnrýna hvalveiðar Íslendinga

Það er hins vegar mjög skondið vegna sögunnar:
"Sænskir fjölmiðlar hafa hins vegar rifjað það upp, að í raun voru það Svíar sem greiddu götu Íslands inn í hvalveiðiráðið með umræddum fyrirvara. Svíar greiddu þá atkvæði með inngöngu Íslands, sem samþykkt var í flókinni atkvæðagreiðslu með eins atkvæðis mun. Þáverandi umhverfisráðherra Svíþjóðar sagði á eftir, að gerð hefðu verið mistök í atkvæðagreiðslunni og formaður sænsku sendinefndarinnar hefði þrýst á rangan atkvæðahnapp." Heimild: mbl.is

Ég verð nú að segja að ég skil ekki þessa hysteríu. Mögulega mjög ótaktískt hjá Íslendingum að byrja hvalveiðar á nýjan leik, og þá aðallega með tilliti til hvalaskoðunar og ferðamannaiðnaðarins hér heima en varla er heimsbyggðin að hafa áhyggjur af því ?
Sló myndin "Free Willy" svona gríðarlega í gegn í heiminum að menn geta ekki hugsað sér að veiða svona sæt dýr lengur ?

Frumefni 118 fundið

Frumefni nr. 118 í lotukerfinu hefur loksins verið búið til skv. sannfærandi niðurstöðum.

Frumefnið hefur síðustu ár átt sitt sæti í lotukerfinu vegna niðurstaðna frá 1999 þar sem vísindamenn við Lawrence Berkeley National Laboratory sögðust hafa smíðað frumefnið en það kom í ljós að einn þeirra hafði falsað niðurstöður (uss uss).

Vísíndamönnum við Dubna í Rússlandi hefur hins vegar tekist að smíða frumefnið á sannfærandi hátt með því að skjóta kalsíum atómum á californíumeind.

Sjá frétt á PhysOrg

Nú þarf bara að finna frumefni 117 til að fylla upp í síðustu eyðuna í 118 kassa lotukerfinu áður en við getum farið að bæta við nýrri röð í lotukerfið.

diamond substrate

"... well if you can afford a diamond substrate you might as well go buy a yacht and give up chemistry..."

Ég veinaði úr hlátri (innra með mér, enda í tíma) þegar ég heyrði þessa útskýringu kennarans á því hvers vegna demantsyfirborð er aldrei notað í stað grafítyfirborðs í vissri CVD-tilraun sem kennarinn var að lýsa.
Svona er nú húmor minn nú til dags.

hitt og þetta

Fann Kanadamanninn í mér byrja brjótast út á hverfispöbbnum í gær þar sem ég fékk mér að borða þegar ég nennti ekki að læra meira um ALD, XRD, AFM, CVD, SEM, QCM, RBS og TEM (tíkall handa þeim sem fattar hvað kúrsinn minn fjallar um) sem ég verð prófaður í á mánudagsmorgun. Ég sat á kanadískum pöbb, fékk mér kanadískan bjór, fékk mér...ahem...gríska pítu... og horfði á þjóðaríþrótt Kanadamanna, íshokkí. Mikil stemmning var á pöbbnum, allir í salnum að fylgjast með af mikilli innlifun sem kom mér á óvart þegar ég sá að annað liðið var frá Toronto og hitt liðið ekki Ottawa Senators. Uppgötvaði svo að hitt liðið var New York Rangers sem skýrði aðstæður en Ottawabúar eru greinilega tilbúnir að halda með nágrannaliðinu þegar andstæðingurinn er Bandaríkjamenn.

Fór í sendiráðsboð á föstudaginn þar sem verið var að minnast þátt Kanadamanna við varnir Íslands í seinni heimsstyrjöld. Þar voru meira og minna allir Íslendingar staddir í Ontariohéraði en meiri hlutinn samanstóð af Kanadamönnum sem tengdust Íslandi á einn eða annan hátt. Þarna var svo borgarstjóri Reykjavíkur einnig mættur.

Fjólubláir tómatar

Segið svo að vísindamenn rannsaki aldrei neitt merkilegt og til bóta fyrir mannkynið.

Fjólubláir tómatar

Trúboð í Garðabæ

Alveg ótrúlegt að svona skuli viðgangast.
Ráðinn hefur verið skólaprestur og skóladjákni við þrjá grunnskóla í Garðabæ.
Er þetta hluti af s.k. "Vinaleið" sem er "sálgæsla og forvarnastarf sem fer fram með stuðningsviðtölum við nemendur um ýmislegt sem þeim liggur á hjarta." Af prestum og djáknum !
Vefsíða Garðabæjar

Siðmennt hefur mótmælt þessu harðlega og sent bréf á menntamálaráðherra (Sjá hér) enda brýtur þetta í bága við grunnskólalög, mannréttindasáttmála S. Þ. og gengur mjög nálægt brot á trúfrelsislögum, auk þess að vera gríðarlega siðlaust.
Þetta á sjálfsagt eftir að gera lítið samt miðað við þjóðfélagið sem við búum í þar sem kirkja hefur bein tengsl við ríkið og núverandi ríkisstjórn finnst þetta í fullkomnu lagi.
Sjá fréttatilkynningu Siðmenntar

Mæli með umfjöllun Vantrú um þessi mál.


Hvað er eiginilega að gerast í þínum heimabæ, Ester ?

Kraftaverk

Alveg frábært myndband þar sem James Randi kemur upp um kraftaverkakallinn Peter Popoff sem læknaði fólk með höndunum og guði. Sjá hér

Hef alltaf furðað mig á fólki sem ég hef talað við og segist trúa svona löguðu.

Bjór

Fyrst fólk vill ekki bara eintóma efnafræði þá kem ég með rónasögur af mér í staðinn:

Ég þarf að fara herða mig í bjórdrykkjunni. Ég á enn nokkra bjóra eftir af útlendu bjórunum sem ég keypti í ríkinu um daginn.
Svo er að taka næsta skammt, miðað við úrvalið á ég eftir að vera lengi að en takmarkið er að prófa alla bjórana í ríkinu.
Þeir hafa nánast allir verið góðir og sumir mjög góðir. Vinninginn eins og er hefur litháenskur bjór sem ég drakk á föstudaginn uppi í herbergi og fast á eftir fylgir einn pólskur. Því miður er ég búinn að gleyma hvað þeir hétu og er ekki með bjórbókhaldslistann góða á mér eins og er. Svo bragðaði ég á einum skoskum um daginn, Innis & Gunn sem var hins vegar með svo sterku viskýbragði að ég gat ekki klárað hann, hann var bara vondur. Ég er sjálfur hrifinn af viský en bjór og viský fer bara ekki saman að mínu mati. Þessi er sá eini sem fékk falleinkunn.

Svo er frábær breskur pöbb nánast inni á háskólasvæðinu, Royal Oak, en þar eru þeir með gríðarlegt úrval af ýmsum bjórum ( sérstaklega breskum og írskum) og það sem meira er þá eru þeir með þá á krana sem gerir bjórinn náttúrulega mun ferskari en úr dós/flösku.
Takmarkið er einnig að prófa alla bjóra þar inni. Bragðaði á mörgum góðum rauðum bjórum þar, Rickard's Red og Sleeman's Honey Brown voru mjög góðir. Bragðaði svo Hoegaarden í fyrsta skipti sem var upplifun. Fékk hann í risa glasi sem minnti á blómapott og kryddkeimurinn af bjórnum situr enn eftir.

Það eru líka nokkrir góðir bjórar á skoska pöbbnum Highlander's. Ég legg hins vegar ekki í að prófa þær 140 tegundir af viský sem staðurinn er frægur fyrir að bjóða upp á.
Vel á minnst þá bragðaði ég einnig haggis í fyrsta skipti á þeim stað en haggis er eins og allir vita þrífætt dýr sem ráma um skosku hálöndin. Þetta var bara hin fínasta máltíð sem var fullkomnuð með glasi af wee dram sem fylgdi með.

Efnafræðiblogg

Uppgötvaði að það getur verið mjög gaman að lesa blogg sem fjalla eingöngu um efnafræði og setti af því tilefni inn tengla á nokkur blogg hér til vinstri sem mér finnst gaman að lesa. Mæli með þessu.

Hef einnig (og er svo sem smám saman byrjaður) ákveðið að reyna smá tilraun með þessa vefsíðu mína; ég ætla að auka efnafræði- og vísindaáherslu síðunnar mikið og sjá hvort að markaður sé fyrir slíkt blogg á íslenskri tungu. Ég er einnig að spá í að koma inn umfjöllun um trúleysi, kukl og gervivísindi sem eru hlutir sem heilla mig á mjög mismunandi vegu.

Þetta verður spennandi. Skulum sjá hvernig þetta þróast.

kalt...

Kanada er orðið kalt... af hverju sagði mér þetta enginn ?

Rokkstarpartí

Jæja, þá hefur maður farið í sitt fyrsta rokkstjörnupartí.

Magni og Dilana (úr Rock Star dæminu) komu óvænt til Ottawa og héldu tónleika á laugardaginn. Við ákváðum að skella okkur og keyptum miða á eitthvað sem kom svo í ljós að voru ekki hefðbundnir tónleikar heldur meira e.k. rokkarapartý þar sem þau tvö m.a. spiluðu. Aðalatriðið var hins vegar greinilega tækifærið að geta spjallað við þau og boðið þeim í glas og eitthvað svoleiðis. Mjög spes...
Nú, við hittum reyndar Magna sem skálaði við okkur og kynnti okkur fyrir Dilönu vinkonu sinni sem af einhverri ástæðu sagði mér að 'fara í rassgat' þegar ég heilsaði henni. Hún var skemmtilegur karakter og MJÖG lítil.
Miðað við mannflóðið sem vildi tala við Magna og fá eiginhandaráritanir og hvaðeina virðist hann vera kominn ágætlega á leið með að koma sér á framfæri.

Sunnudeginum var eytt í gríðarlega þynnku og svo Thanksgiving boð sem Íslendingahjón buðu okkar í um kvöldið. Það var mjög gaman.

Rótarbjór

Í matvöruversluninni um daginn varð ég var við í gosdeildinni flöskur og dósir af rootbeer, sem myndi þýðast sem rótarbjór á íslensku. Ég hafði heyrt þessa drykks getið í bandarískum bíómyndum og ég varð náttúrulega að prófa og keypti eina dós.
Vissi reyndar að þetta ætti ekkert skylt við alvöru bjór (sem ég er mikils aðdáandi) og átti frekar von á e.k. maltbragði.
Þetta var hins vegar ekkert líkt malti, ég get ekki lýst bragðinu en einn sopi varð til þess að ég tæmdi restina í vaskinn, skolaði munninn vel og lengi með vatni og fékk mér svo alvöru bjór til að róa taugarnar.
Stórfurðulegur drykkur...
Hér má lesa nánar um rótarbjór: Sjá hér

Jesus Camp

Þessi verður áhugaverð, bandarísk heimildarmynd um nýja gerð af kristnum heilaþvotti í Bandaríkjunum.
Varúð, frekar rosalegt...

Trailer (Apple.com)

Sjá annað myndskeið hér

Nóbelsverðlaunin í efnafræði 2006

Roger D. Kornberg, prófessor við læknadeild Stanford fær nóbelsverðlaunin í efnafræði í ár. Hann er maðurinn á bak við skilning okkar á því hvernig umritun DNA í mRNA fer fram í heilkjörnungum (þ.e. ekki-bakteríum). mRNA-ið fer svo út úr frumukjarnanum og að ríbósómum þar sem erfðaupplýsingar eru notaðar í smíði próteina sem sjá allt heila klabbið í líkömum okkar.
Svona er nú efnafræðin mögnuð.

Sjá hér

bjór....

Það er frábær vínbúð hérna í nágrenninu. Við héldum smá matarboð/partý við Íslendingarnir í U of O og í tilefni af því ákvað ég að prófa kaupa bjór sem ég hafði aldrei prófað áður. Ég keypti mér 16 mismunandi bjóra samtals, frá 15 mismunandi löndum (2 voru óvart báðir pólskir) og 5 heimsálfum. Gríðarlegt úrval var sem sagt af bjór í þessari vinbúð og nóg var úrvalið eftir þegar ég var búinn að fylla pokana tvo. Það verður annað ævintýri.
Þetta kostaði ekki nema rúmlega 2000 kr, 16 bjórar og næstum allir innfluttir. Ég sé mig ekki fyrir mér reyna slíkt í ÁTVR heima.

Bjórinn var allur mjög góður en fyrir þá sem hafa áhyggjur þá kláraði ég þá ekki á þessu kvöldi. Það verður á miðvikudaginn!

Þetta kvöld reyndu Íslendingarnir svo bæjarferð í von um að uppgötva næturlíf Ottawa. Það reyndist vera ekkert, því eins og alvöru Íslendingar þá vorum við á ferli kl. 2 um nótt og þá loka skemmtistaðir bæjarins, hver einasti einn.