Uppfærsla
Jæja, þá er vefurinn orðinn helvíti flottur. Er búinn að bæta inn enn fleiri linkum hér til vinstri og hægri, aðallega sniðugar síður um efnafræði.Einn megin tilgangur þessa vefs er að halda utanum fyrir sjálfan mig gott safn af tenglum að vefsíðum sem ég finn og vil geta komist á snögglega aftur án þess að þurfa googla úr mér allt vit.
Við sjáum svo til hversu duglegur ég eigi eftir að vera að blogga. Alla vega mun ég gera eitthvað í þeim málum á meðan á Kanada dvöl minni stendur og svo er aldrei að vita nema ég komi með efnafræðipistla af og til.
Kanadaför
Fyrir þá sem ekki vita þá er ég á leiðinni í skiptinám til Háskólans í Ottawa í Kanada á næstu önn.Þetta er hluti af mastersnámi mínu, en 15 einingar af 60 verð ég að nýta í kúrsa og get vonandi uppfyllt kúrsaskylduna sem mest þarna úti.
Sunna og Ester, labbfélagar mínir fara einnig í sama skóla.
Ég er búinn að bóka flug út 29. ágúst og kem svo vonandi heim fyrir jól.
Fyrsta færsla
Jæja. Þá er glænýja frábæra vefsíðan mín loksins komin í gang.Þetta á eftir að verða frábær vefsíða.


