Lífshlaup

Páll Einarsson
Janúar 2006


Uppruni


Fæddur í Reykjavík, 27. mars 1947.
Maki: Ingibjörg Briem.
Börn: Einar Pálsson (f. 1967), Jóel Pálsson (f. 1972), Magnús Pálsson (f. 1992).


Menntun


Stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 1967.
Nám í Tónlistarskólanum í Reykjavik 1957-1967, aðalfög cellóleikur og hljómfræði.

Nám í eðlisfræði við háskólann í Göttingen í Þýskalandi 1967-1970, aukafög stærðfræði og efnafræði. Fyrrihlutapróf (Vordiplom) 1970.

Nám í jarðeðlisfræði við Columbia háskólann í New York 1970-1975. Aðalfag jarðskjálftafræði, aukafög eðlisfræði, almenn jarðfræði og strúktúrjarðfræði. M.Phil.-gráða 1974 og Ph.D.-gráða 1975.


Starfsferill


Rannsóknarstörf (graduate research assistant) við Lamont - Doherty Geological Observatory 1970-1975.

Aðstoðarkennari í almennri jarðfræði við Columbia háskólann 1974-1975.

Sérfræðingur við Raunvísindastofnun Háskólans 1975-1994. Fastráðinn sérfræðingur 1978, fræðimaður 1987, vísindamaður 1993-1994 og 1997-1998. Forstöðumaður jarðeðlisfræðistofu og sæti í stjórn R.H. 1983-1987, sæti í Háskólaráði 1986-1990. Sæti í deildarráði Raunvísindadeildar 1988-1989. Í Vinnumatsnefnd 1992-1994.

Stundakennari við Háskóla Íslands í eðlisfræði, jarðeðlisfræði, jarðskjálftafræði og tektóník, frá 1975. Prófessor í jarðeðlisfræði 1994-1997 og frá 1999.

Ráðgjafi Almannavarna um hættu af jarðskjálftum og eldgosum, síðan 1975. Sæti í Vísindamannaráði Almannavarna frá upphafi. Í nefnd á vegum Umhverfisráðuneytisins um aðgerðir til að draga úr hættu af völdum jarðskjálfta, 1996.


Fagfélög


Jarðfræðafélag Íslands

Vísindafélag Íslendinga
Eðlisfræðifélag Íslands
Jöklarannsóknafélag Íslands
American Geophysical Union
Seismological Society of America