|
Lífshlaup (Curriculum Vitae) Prófessor í jarðeðlisfræði Jarðvísindadeild Háskóla Íslands Askja, Sturlugata 7, 101 Reykjavík September 2009 English version |
|
Uppruni Fæddur 8. maí 1961 í Reykjavík. Maki: Anna Líndal myndlistarmaður. Börn: Rögnvaldur (f. 1989) og Katla Sigríður (f. 1993). |
|
|
|
|
|
Leiðbeining framhaldsnema 1998-2009 Aðalleiðbeinandi þriggja MS nema við HÍ (luku 2000, 2006, 2007) og tveggja sem enn eru í námi. Í námsnefndum 3ja annarra sem lokið hafa MS-prófi og 3ja sem nú eru í námi. Aðalleiðbeinandi eins PhD nema við HÍ (lauk 2007) og eins sem er í námi, meðleiðbeinandi eins PhD nema við Edinburgh University, seta í doktorsnefnd tveggja PhD nema (HÍ - lauk 2004) og University of Keele (lauk 2004). |
|
Rannsóknasvið 1. Eðli eldvirkni undir jöklum, einkum samspil eldgosa og jökla. Áhrif jökulsins á lögun og myndun eldfjalla og áhrif eldvirkninnar á jökulinn, m.a. áhrif á ísskrið og vatnsrennsli undir jöklum. Áhrif jökulfargs á eldvirkni. 2. Basísk sprengigos og áhrif utanaðkomandi vatns á hegðun þeirra. 3. Innri gerð megineldstöðva, lega innskota og kvikuhólfa og samspil eldvirkni og jarðhita. Sér í lagi innri gerð megineldstöðva undir jöklum og áhrif jökulsins á jarðhita og byggingu. 4. Jarðeðlisfræðileg könnun, einkum þyngdarmælingar og nýting þeirra við könnun á innri gerð eldstöðva og við að leysa ýmis önnur jarðfræðileg vandamál. |
|
Ritstörf (sjá ritskrá á http://www.raunvis.hi.is/~mtg/MTG-ritskra.htm) 1. Höfundur og meðhöfundur að um 50 ritrýndum greinum í fræðilegum tímaritum eða fræðibókum. 2. Höfundur og meðhöfundur að um 30 fræðslugreinum og öðrum lítt ritrýndum greinum um fræðileg efni. 3. Höfundur og meðhöfundur að tæplega 30 fræðilegum skýrslum. 4. Höfundur texta fjögurra ljósmyndabóka um Ísland. Um 50 erindi á alþjóðlegum vísindaráðstefnum, m.a. allmörg boðserindi. Um 40 fræðileg erindi á innlendum ráðstefnum eða á vegum fræðafélaga, 12 boðserindi við erlenda háskóla og um 45 erindi fyrir almenning. |
|
Ráðgjöf 1. Í vísindamannaráði Almannavarna frá 1996: ráðgjöf stjórnvöld og almannavarnir um vá vegna eldgosa og jökulhlaupa. 2. Upplýsingagjöf við almenning gegnum fjölmiðla um eldgos, jökulhlaup og ýmis jarðvísindaleg efni, einkum í tengslum við Gjálpargos 1996, Grímsvatnagos 1998 og 2004, Heklugos 2000 og óróa í Kötlu. |
|
Ritstjórn 1. Journal of Geodynamics, 43 (1), 2007. Special Issue: Hotspot Iceland. (ásamt Wolfgang Jacoby). 2. Hættumat vegna eldgosa og hlaupa frá vestanverðum Mýrdalsjökli og Eyjafjallajökli. Ríkislögreglustjórinn og Háskólaútgáfan. 210 bls. 2005. (ásamt Ágústi Gunnari Gylfasyni). 3. Einn af ritstjórum Journal of Glaciology (frá ágúst 2007). 4. Einn af gestaritstjórum Annals of Glaciology, 48, 2008. |
|
Stjórnun Innan HÍ / fyrir HÍ: - Deildarforseti Jarðvísindadeildar og forstöðumaður Jarðvísindastofnunar, frá júlí 2008 - Í fagráði Keilis 2009 - GEORG, öndvegisklasi í jarðhita - í stjórn 2009 - Í stjórn Vísindagarða - frá 2007 - í samstarfsnefnd HÍ og Ísor - frá 2006 - Formaður fagráðs REYST orkuskólans, frá 2007 - Í framkvæmdanefnd JH - 2007-2008 - Skorarformaður í eðlisfræðiskor, 2005-2007. - Í stefnumótunarhópi raunvísindadeildar 2006-2007 - Í samninganefnd um stofnun Jarðvísindastofnunar Háskólans 2003-2004 - Í Vísindanefnd raunvísindadeildar 1999-2004 - Í stjórn Minningarsjóðs Aðalsteins Kristjánssonar 1997-2005. Utan HÍ: - Nordforsk - Expert Panel Math/Nat 2009 - formaður IAVCEI-IACS Commission on Volcano-Ice interaction (2008) - (ex officio 2009) ritari (Secretary) 2006 varaformaður (Vice Chair) 2007 - Formaður Jöklarannsóknafélags Íslands, frá 1998 - Í stjórn Jarðfræðafélags Íslands 1994-1998 - Í stýrihópi Ríkislögreglustjóra um hættumat vegna gosa og hlaupa frá Mýrdalsjökli og Eyjafjallajökli 2003-2005 Seta í undirbúningsnefndum ráðstefna: - Ráðstefnur Jarðfræðafélags Íslands 1994-1998 - Ice-Volcano Interaction on Earth and Mars, Reykjavík, ágúst 2000 - International Symposium on Earth and Planetary Ice-Volcano Interactions, Reykjavík, júní 2006 - IAVCEI General Assembly, Reykjavík, ágúst 2008 |
|
Fagfélög Jöklarannsóknafélag Íslands, frá 1977 International Glaciological Society (IGS) Jarðfræðafélag Íslands, frá 1991 American Geophysical Union (AGU) frá 1987 European Geosciences Union (EGU), frá 1998 International Association of Volcanism and Chemistry of the Earth's Interior (IAVCEI), frá 2000 Vísindafélag Íslendinga, frá 2006 |
|
|
|
|