Segulmælingastöðin í Leirvogi

[Mynd af segulmælingastöð]

  leirvogur plot

Línurit mælinga síðasta sólarhring

Línuritin hér að ofan eru endurnýjuð á tíu mínútna fresti. Efsta ritið (Z) sýnir styrkleika segulsviðs jarðar í stefnu lóðrétt niður, næsta línurit (H) sýnir láréttan styrkleika sviðsins og neðsta línuritið (D) sýnir áttavitastefnuna. Z og H eru sýnd í einingunum nanotesla (nT), en D er sýnt í gráðum sem reiknast sólarsinnis frá norðri um austur upp í 360°. Ef D er t.d. 345° merkir það að misvísun áttavitans í Leirvogi er 345° til austurs eða 15° til vesturs (360-345 = 15). Meðalmisvísun á Reykjavíkursvæðinu er um 2° meiri til vesturs og væri þá um 17° V í þessu dæmi. 

Misvísun á Íslandi (kort)

Línurit mælinga í gær
 

Línurit K-gilda

Eldri línurit frá Leirvogi (til sýnis í gagnamiðstöðinni í Kyoto)

Gagnaskrár

Raunvísindastofnun Háskólans, Háloftadeild



Gunnlaugur Björnsson og Marteinn Sverrisson settu upp línuritin á þessari síðu í apríl-maí 2003.
Mynd og texti: Þ.S.


English version