-----Original Message-----
From: 	Eiríkur Tómasson
Sent:	27. febrúar 2001 11:19
To:	Ólöf
Subject:	RE: Höfundarréttargjöld af geisladiskum og fleira

Komdu sæll.

Það er reyndar ekki STEF, heldur sameiginleg innheimtumiðstöð höfunda og
annarra rétthafa, skst. IHM, sem annast innheimtu þessa gjalds.
Endurgreiðsla á gjaldinu kemur til greina ef unnt er að ganga úr skugga um
að diskarnir séu notaðir með þeim hætti sem þú vísar til.
Við, sem erum í fyrirsvari fyrir IHM, munum hitta innflytjendur og aðra
hagsmunaaðila á næstunni og ræða þetta mál og önnur við þá.

Með kveðju,
Eiríkur Tómasson

-----Original Message-----
Subject: Höfundarréttargjöld af geisladiskum og fleira


Til STEFS

Nú hefur verið sett reglugerð um innheimtu á gjöldum af geisladiskum og
geislaskrifurum til nota við tölvur.

Að því tilefni vil ég spyrja um hvernig ég og mín stofnum fáum okkar
hlut af þessum gjöldum.

Við á Raunvísindastofnun Háskólans,
notum geisladiska og segulbönd til afritunar á tölvugögnum, sem eru
okkar eigin hugverk og einnig til
afritunar á tölvudiskum sem hafa að geyma hugbúnað sem er í okkar eigu.

Ég tel það því augljóst að við munum fá þetta gjald endurgreitt frá
STEF og spyr því hvort það nægji að framvísa reikningum fyrir umrædda miðla
til að STEF endurgreiði okkur þessi gjöld?

Með virðingu

Marteinn Sverrisson, verkfræðingur og kerfisstjóri tölvukerfa
Raunvísindastofnunar Háskólans
--
   Marteinn Sverrisson    Internet: matti_at_raunvis.hi.is
     Science Institute    http://www.raunvis.hi.is/~matti
 University of Iceland    Phone: +354-525-4776
107 Reykjavik, Iceland    Fax: +354-552-8911