Eðlisfræðikeppni framhaldsskóla á Íslandi

Vor hvert heldur Eðlisfræðifélag Íslnds keppni í eðlisfræði fyrir nemendur á framhaldsskólastigi. Keppnin er í tveimur umferðum; landskeppni þar sem öllum nemöndum í framhaldsskóla er boðið að taka þátt, og lokakeppni fyrir 14 efstu keppendurna úr landskeppninni.

Landskeppnin fer fram í samstarfi við kennara skólanna sem leggja verkefnin fyrir nemendur sína á sama tíma. Lokaumferðin er svo haldin eina helgina í seinni hluta marsmánuðar og samanstendur annars vegar af fræðilegum dæmareikningi og hins vegar verklegum æfingum. Keppnin er alla jafna haldin í húsnæði Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands og laugardagurinn lagður í fræðilega hlutann en sunnudaginn framkvæma nemendur tilraunir.

Verðlaun eru veitt fyrir fimm efstu sætin. Þar að auki eru fimm efstu keppendum sem uppfylla skilyrði Alþjóðaólympíukeppninnar í eðlisfræði boðið að fara á hana sem fulltrúar Íslands en hún er haldin í júlí ár hvert.

Lokakeppnir

Æfingaefni

Við undirbúning undir landskeppnina getur verið gott að fara yfir gamlar for- og lokakeppnir: Strembnari dæmi er svo að finna á upplýsingasíðunni um ólympíukeppnina.

Landskeppnir:
2003 2004 2005 2006 2007 2009 2010 2011 2012
Lokakeppnir:
2003 2004 2005 2006 2007 2009 2010 2011 2012

Óáhugavert efni tengt keppninni