Ég er að vinna að M.Paed. gráðu í eðlisfræði og kenni eitthvað meðfram því námi. Meira um námið er að finna á www.hi.is/~martin. Persónulega síðan mín er á martin.swift.is.
Vinsamlegast beinið tölvupósti á martin (at) hi . is.

Kennsla
Þetta misseri leiðbeini ég í verklegum tímum Eðlisfræði 2 á þriðjudögum eftir hádegi. Á heimasíðu Ara Ólafssonar má finna frekari upplýsingar um skipulagið.
- Vor 2011: Eðlisfræði 2
- Nytsamleg síða fyrir geislarakningu
- Vernier Calipers — Ágætt Java applet með útskýringu á aflestri Vernierkvörðunar.
- Haust 2011: Eðlisfræði 1
- Vor 2011: Eðlisfræði 2
- Haust 2010: Eðlisfræði 1 og Eðlisfrfæði B
- Vor 2010: Eðlisfræði 2
- Haust 2009: Eðlisfræði B
Raunvísindi—spennandi fræði
Sumarið 2011 er ég að vinna að þróun kynningarefnis í náttúruvísindum.
Landskeppnin í eðlisfræði og IPhO
Snemma á vori ár hvert er haldin keppni í eðlisfræði fyrir nemendur á framhaldsskólastigi. Undankeppnin fer fram í framhaldsskólum og er svo þeim sem best standa sig boðið í lokakeppnina sem fer fram nokkrum vikum síðar í húsnæði Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands. Upplýsingar um nýlokna lokakeppni og keppnina almennt er að finna hér á þessari síðu
Háskólalestin
Í vorlok 2011 fór Háskólalestin á Skagaströnd og slóst ég í för með Ara, Guðrúnu og genginu. Sjá myndir frá ferðinni.
Áhugavert efni
Stjörnufræðivefurinn hefur fréttir og vefvarp áhugaverðra myndbrota. Því miður er Eðlisfræðivefurinn í nokkru lamasessi, svo ég ákvað að safna þeim hér.
Háskóladagurinn
Upplýsingar um efni sem nemendur undirbjuggu og fluttu á Háskóladaginn 2011.
Rafheimar
Myndir frá símenntunarnámskeiði náttúrfræðikennara í Rafheimum í september 2009.


