7. Landskeppnin í efnafræði

veturinn 2007-2008

 

Val á liði Íslands fyrir 40. Ólympíukeppnina í efnafræði sem fram fór í Búdapest, Ungverjalandi7 í júlí 2007.

 

 

7. Landskeppnin í efnafræði skólaárið 2007-2008

 

 

Almenna landskeppnin

Sjöunda Almenna landskeppnin í efnafræði fór fram þriðjudaginn 19. febrúar 2008 í framhaldsskólum landsins.  Verkefnið var með hefðbundnu sniði og spurt var úr flestum grundvallaratriðum efnafræðinnar.  Alls tóku þátt í keppninni 104 nemendur frá 10 framhaldsskólum.  Fjöldi þáttakenda frá hverjum skóla var eftirfarandi:

         ____________________________________________

                  Skóli                            Fjöldi þáttakenda

         __________________________  ______________

         Menntaskólinn í Reykjavík                    55

         Menntaskólinn við Sund                          9

         Menntaskólinn við Hamrahlíð                  8

         Fjölbrautaskóli Suðurlands                       8

Menntaskólinn á Akureyri                        6

Verzlunarskóli Islands                     5

Flensborgarskólinn                                   4

Fjölbrautaskóli Suðurnesja                       4

Kvennaskólinn í Reykjavík                      3

Menntaskólinn að Laugarvatni                 2

____________________________________________

 

Sigurvegari 7. Almennu landskeppninnar var Karl Njálsson, Menntaskólanum í Reykjavík en hann fékk 75,3 stig af 100 mögulegum. Meðalstigafjöldinn var 36,9 stig. 

 

Úrslikeppnin

Sautján efstu keppendum almennu landskeppninnar var boðið að keppa til úrslita.  Tólf þeirra mættu til leiks í Háskóla Íslands og kepptu í fræðilegri og verklegri efnafræði helgina 8.–9. mars 2008.  Sigurvegari 7. Landskeppninnar í efnafræði var Hörður Freyr Yngvason, Menntaskólanum í Reykjavík.  Næstu fjórir keppendur: Vésteinn Snæbjarnarson, Gunnsteinn Finnsson, Guðni Þór Þrándarson og Sindri Davíðsson, voru valdir í Ólympíulið Íslands í efnafræði en þeir eru allir nemendur í Menntaskólanum í Reykjavík.  Ólympíuliðið keppti á 40. Alþjóðlegu Ólympíuleikunum í efnafræði í Búdapest í Ungverjalandi dagana 12.-21. júlí 2008.

 

Gísli Hólmar Jóhannesson og Erlendur Jónsson fóru með liðinu ásamt vinkomu Gísla.  Liðið stóð sig þokkalega í þetta skiptið.  Guðna Þór gekk best en hann fékk heiðursviðurkenningu og hann vantaði aðeins 0,4 stig til að ná bronsverðlaunum.