4. Landskeppnin í efnafræði
veturinn 2004-2005
Val á liði Íslands fyrir
37. ólympíukeppnina í efnafræði sem fram fór í Taípei í Taívan í júlí 2005.
I Almenn
landskeppni
Fjórða
almenna landskeppnin í efnafræði fór fram miðvikudaginn 9. februar 2005 kl.
8:00-10:00. Alls tóku 85 nemendur þátt frá átta framhaldsskólum. Sigurvegari
keppninnar var Tomasz Halldór Pajdak úr Menntaskólanum í Reykjavík en Arnar Þór
Stefánsson úr Menntaskólanum á Akureyri fylgdi honum fast eftir.
Röð
efstu keppenda er eftirfarandi:
1 Tomasz
Halldór Pajdak, MR
2 Arnar
Þór Stefánsson, MA
3 Þórey
María Maríusdóttir, MR
4 Jakob
Tómas Bullerjahn, MH
5 Hildur
Knútsdóttir, VÍ
6 María
Óskarsdóttir, MR
7 Inga
Steinunn Helgadóttir, MA
8 Benjamín
Ragnar Sveinbjörnsson, MH
9 Halldór
Berg Harðarson, MR
10 Saga
Össurardóttir, MH
11 Haukur
Guðmundsson, MR
12 Brynjar
Örn Ellertsson, MA
13 Kristján
Rúnarsson, MR
Þessum
þrettán nemendum var boðið að taka þátt í úrslitakeppni efnafræðikeppninnar sem
fór fram við Háskóla Íslands dagana 26. og 27. febrúar.
II Úrslitakeppni í efnafræði
Úrslitakeppnin
skiptist í fræðilega keppni og verklega keppni og fór hvor tveggja fram við
Háskóla Íslands helgina 26.-27. febrúar 2005.
Tólf
keppendur mættu til keppninnar.
Sjá myndir úr verklegu
keppninni (http://www.pezkallar.com/myndir/Landskeppnin_2005/index.php).
Röð
keppenda var eftirfarandi:
1 Tomasz
Halldór Pajdak, MR
2 Jakob
Tómas Bullerjahn, MH
3 Arnar
Þór Stefánsson, MA
4 Inga
Steinunn Helgadóttir, MA
5 Hildur
Knútsdóttir, VÍ
6 Þórey
María Maríusdóttir, MR
8 BenjamÌn
Ragnar Sveinbjörnsson, MH
9 Saga
Össurardóttir, MH
10 Haukur Guðmundsson, MR
11 Brynjar Örn Ellertsson, MA
12 Halldór Berg Harðarson, MR
Vægi
fræðilega hlutans í lokastigafjöldanum er 60% en þess verklega 40%.
Arnar
Þór Stefánsson úr Menntaskólanum á Akureyri stóð sig best í fræðilega hlutanum
en Tomasz Halldór Pajdak og Jakob Tómas Bullerjahn voru hnífjafnir með besta
árangur í verklega hlutanum.
Verðlaunaafhending fyrir efnafræðikeppnina fór fram í Skólabæ við Suðurgötu fimmtudaginn 23. júní.
III
Ólympíulið
Íslands 2005
Í ólympíulið
Íslands 2005 voru valin:
• Tomasz Halldór Pajdak, MR
• Arnar Þór Stefánsson, MA
• Hildur Knútsdóttir, VÍ
• María Óskarsdóttir, MR
Jakob
Tómas Bullerjahn var orðinn tvítugur fyrir ólympíukeppnina og komst því ekki
með. Inga Steinunn Helgadóttir
ákvað að taka heldur þátt í Ólympíukeppninni í stærðfræði og Þórey María
Maríusdóttir tók þátt í ólympíukeppninni í eðlisfræði.
IV IChO37 í Taípei, Taívan, 16.-25. júlí
Fréttatilkynning Gísla Hólmars Jóhannessonar:
Alþjóðlega
Ólympíukeppnin í efnafræði fór fram á Taívan dagana 15. til 26. júlí fyrr á
þessu ári. Keppnin var haldin í
höfuðborginni Taípei. Íslendingar sendu lið í fjórða sinn til þessarar árlegu
keppni.
Þetta er í 37.
skipti sem Ólympíukeppnin er haldin en hún var fyrst haldin í Prag árið
1968. Markmið keppninnar eru að
hvetja nemendur sem hafa áhuga á efnafræði til dáða, gefa þeim tækifæri á að
hitta annað ungt fólk frá ýmsum löndum og stuðla þannig að auknum tengslum og
alþjóðlegri samvinnu innan og utan fræðigreinarinnar.
Í ár tóku 225
keppendur frá 59 löndum þátt í keppninni.
Sigurvegari keppninnar var Alexey Zeifman frá Rússlandi, en hann sigraði
keppnina líka í fyrra. Í öðru sæti
ekki langt á eftir var Jesada Temaismithi frá Taílandi og í þriðja sæti var
Anton Repko frá Slóvakíu. Í
fræðilega hlutanum náði bestum árangri Senan Eminov frá Aserbaídsjan sem
hafnaði í 22. sæti og í verklega hlutanum stóð Maximilian Tromayer frá
Austurríki sig best en hann lenti í 47. sæti.
Íslenska liðið
skipuðu að þessu sinni þau Arnar Þór Stefánsson, MA; Hildur Knútsdóttir, VÍ;
María Óskarsdóttir, MR; og Tomasz Halldór Pajdak, MR. Þau voru valin í liðið vegna góðrar
frammistöðu í Landskeppninni í efnafræði sem Efnafræðifélag Íslands og Félag
raungreinakennara héldu síðastliðinn vetur. Áður en haldið var til Taívan gengust þau undir tveggja
vikna þjálfun í dæmareikningi og vinnubrögðum á tilraunastofu við Háskóla
Íslands. Auk keppendanna fjögurra fóru tveir þjálfarar með í Ólympíukeppnina,
þeir Finnbogi Óskarsson og Gísli Hólmar Jóhannesson sem önnuðust þýðingu
prófverkefnanna á íslensku og yfirferð úrlausna keppendanna.
Árangur íslenska
liðsins í ár var svipaður og verið hefur hingað til; enginn kom heim með
verðlaunapening en keppendurnir stóðu sig að meðaltali svipað og lið Norðmanna
og Svía. Hinir síðarnefndu náðu þó einum bronsverðlaunum. Danir og Finnar stóðu sig heldur betur
líkt og undanfarin ár. Danir náðu þremur bronspeningum og Finnarnir lönduðu
tveimur bronspeningum. Besta árangur íslenska liðsins átti Tomasz Halldór.
Tomasz Halldór stóð sig best Íslendinganna í fræðilega hluta keppninnar en
Arnar Þór varð hlutskarpastur í verklega hlutanum.
Það setti svip sinn á keppnina að
fellibylurinn Haitang skall á eyjunni við upphaf hennar. Fellibylurinn var einn
sá stærsti á þessum áratug, en Taívan fær yfir sig einn til tvo fellibylji á
hverju ári. Það fylgdi þessu mikil spenna og ekki síst hjá Íslendingunum sem
vildu endilega kynnast alvöru fellibyl. Þegar til kom fór fellibylurinn að
mestu yfir eyjuna fyrir sunnan Taípei og það varð frekar lítið úr honum á
keppnisstaðnum. Þetta voru að sjálfsögðu ákveðin vonbrigði fyrir veðurbarða
Íslendinga. Þetta þýddi þó að það rigndi meira og minna allan keppnistímann,
sem minnti mjög á ættjörðina nema að hitastigið var mun hærra og rigningin því
hlý. Ókosturinn var að skoðunarferðirnar voru mjög votar. Í lokin stytti upp og
hægt var að njóta veðurblíðunnar í þrjá daga áður en haldið var heim á leið.
Skipulag
Ólympíukeppninnar í ár var í höndum efnafræðideildar National Taiwan Normal
University í Taípei. Skipulagið var ásættanlegt, en sumt hefði mátt betur fara.
Á heildina litið var samt mjög skemmtilegt að kynnast landi og þjóð, sem var
Íslendingunum framandi.
Styrktaraðilar
íslensku efnafræðikeppninnar voru margir og vill Efnafræðifélag Íslands þakka eftirtöldum
aðilum fyrir góðan stuðning: SPRON, Bankastjórn Seðlabankans, Actavis hf.,
Össur hf., Ensímtækni ehf., Málning ehf., Prokaria ehf., VGK, Lyfjaþróun hf.,
A&P Árnason ehf. og Sementsverksmiðjan. Menntamálaráðuneytið styrkti
Ólympíuliðið til ferðarinnar.